Leiðréttingar:
Nr. 1234/2008. Leiðrétt 2. febrúar 2009. PDF-skjal og HTML-texti: 1. gr. a), b) og d) liðir. Tilvísun í fylgiskjöl 1 og 2. Sjá B-deild nr. 15/2009.
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
1234/2008
|
1. gr. 33. gr. orðast svo: Eftirfarandi reglugerðir skulu öðlast gildi hér á landi: | | a) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1896/2000 frá 7. september 2000 um fyrsta áfanga áætlunarinnar sem um getur í 2. mgr. 16. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB um sæfiefni, sem vísað er til í tl. 12o í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 32/2003, frá 14. mars 2003. Reglugerðin er birt í fylgiskjali 1. | | | b) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1687/2002 frá 25. september 2002 um viðbótarfrest til að tilkynna tiltekin, virk efni sem eru þegar á markaði til notkunar sem sæfiefni eins og fastsett er í 1. mgr. 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 1896/2000, sem vísað er til í tl. 12p í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 32/2003, frá 14. mars 2003. Reglugerðin er birt í fylgiskjali 1. | | | c) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2032/2003, frá 4. nóvember 2003, um annan áfanga 10 ára vinnuáætlunarinnar, sem um getur í 2. mgr. 16. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB um markaðssetningu sæfiefna, og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1896/2000, sem vísað er til í tl. 12s í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2004, frá 3. desember 2004. Reglugerðin var birt í EES-viðbæti nr. 54, 15. nóvember 2007, bls. 225-320. | | | d) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1048/2005, frá 13. júní 2005, um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2032/2003 um annan áfanga 10 ára vinnuáætlunarinnar sem um getur í 2. mgr. 16. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB um markaðssetningu sæfiefna, sem vísað er til í tl. 12s í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2006, frá 10. mars 2006. Reglugerðin er birt í fylgiskjali 2. | | | e) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1849/2006 frá 14. desember 2006 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2032/2003 um annan áfanga 10 ára vinnuáætlunarinnar sem um getur í 2. mgr. 16. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB um markaðssetningu sæfiefna, sem vísað er til í tölulið 12s í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 48/2007, frá 8. júní 2007. Reglugerðin er birt í fylgiskjali 3. |
2. gr. Í stað orðsins „fylgiskjal“ í reglugerð nr. 1101/2004, um markaðssetningu sæfiefna komi: fylgiskjal 1. Í stað orðsins „fylgiskjal“ í reglugerð nr. 150/2008, um breytingu á reglugerð nr. 1101/2004, um markaðssetningu sæfiefna komi: fylgiskjal 2. 3. gr. Við A-hluta V. viðauka, „Virk efni sem heimilt er að nota í sæfiefni“, bætist efnið dífeþíalon, sbr. 1. viðauka með reglugerð þessari. 4. gr. Í B-hluta V. viðauka, „Virk efni sem heimilt er að nota í áhættulítil sæfiefni“, kemur tafla sem birt er í 2. viðauka með reglugerð þessari. 5. gr. VI. viðauki „Tilkynnt virk efni í sæfiefnum“, sbr. 8. gr. reglugerðar nr. 243/2007, um breytingu á reglugerð nr. 1101/2004, um markaðssetningu sæfiefna, er felldur úr gildi. 6. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum, og lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi gerðum: | | 1) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1849/2006, sbr. e-lið 1. gr. Reglugerðin er birt í fylgiskjali 3 með reglugerð þessari. | | | 2) | Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2007/69/EB um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu dífeþíalóni í I. viðauka við hana, sem vísað er til í tl. 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 48/2008, frá 25. apríl 2008. | | | 3) | Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2007/70/EB um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu koltvísýringi í I. viðauka A við hana, sem vísað er til í tl. 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 48/2008, frá 25. apríl 2008. |
Reglugerðin öðlast þegar gildi. Umhverfisráðuneytinu, 17. desember 2008. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Sigríður Auður Arnardóttir. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|
B-deild - Útgáfud.:
6. janúar 2009
|