Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 37/2015

Nr. 37/2015 22. janúar 2015
AUGLÝSING
(VIII) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftir­farandi sveitarfélagi:

Ísafjarðarbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 gilda um úthlutun byggðakvóta Hnífsdals, Þing­eyrar, Flat­eyrar og Suðureyrar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

 

a)

Ákvæði a-liðar 1. gr. breytist og verður:

  

Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, eða frístundaveiðileyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests.

 

b)

Ákvæði c-liðar 1. gr. breytist og verður:

  

Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. júlí 2014.

 

c)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:

  

Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðu­neytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal fyrst úthluta bátum með frístundaleyfi, sbr. a) lið, 2 þorskígildistonn á bát, 30% af því sem eftir stendur skal skipt jafnt milli annarra skipa, þó ekki meir í þorsk­ígildum talið en við­kom­andi bátur landaði í þorskígildum talið á fiskveiðiárinu 2013/2014 (þetta gildir á Flat­eyri, Þingeyri og Suðureyri) afganginum skal skipt hlutfallslega, miðað við allan land­aðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, sem landað var innan sveitar­félagsins á tímabilinu 1. september 2013 til 31. ágúst 2014.

  

Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélaginu af bátum sem ekki eru skráðir innan sveitarfélagsins á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

 

d)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður:

  

Fiskiskipum er skylt að landa, þeim afla sem telja á til byggðakvóta, til vinnslu innan sveitar­félagsins, á tímabilinu frá 1. september 2014 til 31. ágúst 2015.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. janúar 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2015