Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 486/2009

Nr. 486/2009 12. maí 2009

GJALDSKRÁ
fyrir hundahald á Suðurnesjum.

1. gr.

Árgjald fyrir að halda hunda sbr. staflið b. í 1. mgr. 2. gr. samþykktar nr. 428/1987, með síðari breytingum, skal vera kr. 11.923.

Allur kostnaður vegna föngunar hunda, sem teknir eru lausir, s.s. útkallskostnaður, bifreiða­kostnaður og búrleiga, skal greiddur af hlutaðeigandi leyfishafa eða umráðamanni hunds sé um leyfislausa hunda að ræða.

2. gr.

Gjaldskrá þessi, sem er samin og samþykkt af sveitarstjórnum Reykjanesbæjar, Grinda­víkur, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga, með heimild í 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir ásamt síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 513/2008 fyrir hundahald á Suðurnesjum.

F.h. sveitarfélaga á Suðurnesjum, 12. maí 2009,

Magnús H. Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.


B-deild - Útgáfud.: 29. maí 2009

  Til baka