Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 138/2010

Nr. 138/2010 1. febrúar 2010
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um frest vegna umsókna um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2010.
  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2010, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1087/2009, er til 1. apríl nk. vegna manna, en til 15. maí 2010 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið [email protected] eða póstlagðar til næstu skattstofu fyrir lok umsóknarfrests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skattstofn vegna tekjuársins 2009 sé a.m.k. 25% lægri en sá skattstofn sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2008, og að álögð gjöld 2010 muni af þeim sökum að lágmarki verða 50.000 kr. lægri en við álagningu 2009.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2010 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2010 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku ákvörðunar ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
  5. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1087/2009 og taka þegar gildi.

Reykjavík, 1. febrúar 2010.

F.h. ríkiskattstjóra,

Ingvar J. Rögnvaldsson.

Guðrún J. Jónsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. febrúar 2010