Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 106/2014

Nr. 106/2014 21. janúar 2014
REGLUGERÐ
um skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga.

1. gr.

Sýslumaðurinn á Siglufirði annast skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga og fer að öðru leyti með verkefni sem sýslumanni eru falin í lögum nr. 108/1999, um skráð trú­félög og lífsskoðunarfélög.

2. gr.

Lágmarksfjöldi félagsmanna til þess að heimilt sé að skrá trúfélag eða lífsskoðunarfélag er 25.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 2. gr., 4. mgr. 3. gr. og 10. gr. laga nr. 108/1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög, með síðari breytingum, sbr. 19. gr. laga nr. 145/2013, öðlast gildi 1. febrúar 2014.

Innanríkisráðuneytinu, 21. janúar 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 31. janúar 2014