Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
1014/2009
|
1. gr. Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 8. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur sem hér segir á árinu 2010: Í júlí 2010 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar. Í desember 2010 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2010. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1193/2008, um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2009. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 8. desember 2009. Árni Páll Árnason. Ágúst Þór Sigurðsson.
|
B-deild - Útgáfud.:
22. desember 2009
|