Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið eftirfarandi: Að stöðubann verði við syðri kant Múlavegar frá Engjavegi að austustu innkeyrslu að bílastæði við Skautahöllina. Bannið er táknað með umferðarmerkinu B21.11. Að biðskylda verði á Sandvaði og Selvaði gagnvart umferð um Elliðabraut. Að hámarkshraði á vegum í Heiðmörk verði 50 km/klst. Hraðatakmörkunin gildir frá gatnamótum Heiðmerkurvegar og Suðurlandsvegar að sveitarfélagsmörkum við Garðabæ.
Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 8. apríl 2013. Stefán Eiríksson. |