Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 667/2015

Nr. 667/2015 3. júlí 2015

REGLUGERЭ
um breytingu á reglugerð nr. 1125/2014 um frammistöðukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu og starfsemi neta.

1. gr.

4. gr. reglugerðarinnar breytist og hljóðar svo:

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð (ESB) nr. 390/2013 frá 3. maí 2013 um frammistöðukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu og starfsemi neta, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 291/2014 frá 12. desember 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 5. febrúar 2015, bls. 728 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. ágúst 2015.

Innanríkisráðuneytinu, 3. júlí 2015.

F. h. r.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir.

Einar Brynjarsson.


B deild - Útgáfud.: 20. júlí 2015