Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1284/2014

Nr. 1284/2014 29. desember 2014
GJALDSKRÁ
fyrir matvæla-, heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit á Suðurlandi.

1. gr.

Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Suðurlands samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og reglugerðum settum með stoð í þeim, lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum og lögum um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum og samkvæmt 8. gr. tóbaks­varna­laga nr. 6/2002 með síðari breytingum, er heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari. Einnig er heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari vegna þjónustu heilbrigðiseftirlitsins skv. ofannefndum lögum.

2. gr.

Tímagjald

kr. 10.200

Gjald vegna rannsóknar pr. sýni í eftirlitsáætlun skv. útlögðum kostnaði.

Af eftirlitsskyldri starfsemi er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta árlegt gjald af eftirlitsskyldri starfsemi eins og fram kemur í viðauka með gjaldskrá þessari, enda fari fram reglubundið eftirlit með starfseminni, skv. eftirlitsáætlun.

Sé starfsemi rekin skemur en 6 mánuði á ári eða að öðru leyti takmörkuð með svipuðum hætti er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjaldið og draga úr eftirliti.

Ef starfsemi hefur samning við faggilta skoðunarstofu, hefur vottað gæðakerfi eða rekur innra eftirlit með starfsemi sinni sem heilbrigðisnefnd telur ganga lengra en reglur kveða á um, er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjöld og draga úr eftirliti samkvæmt þessari grein.

Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund starfsemi sem fellur undir gjaldskrá þessa, á einum og sama stað, er heimilt að innheimta eitt árlegt gjald. Þá er áætlaður tími fyrir hvern fyrirtækjaflokk lagður saman en einungis eitt akstursgjald tekið enda eftirlitsferð samnýtt.

Ef einungis hluti margþætts eftirlits með starfsemi fer fram, er heimilt að lækka eftirlitsgjald sem því nemur.

3. gr.

Af starfsleyfisskyldri starfsemi, er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta gjald fyrir starfsleyfi eins og hér segir:

Endurnýjun starfsleyfis:

 

Starfsleyfisgjald

1,5 tímagjald

 

og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar,

 
 

úttektar og frágangs ásamt auglýsingakostnaði ef við á

 

Ný starfsemi:

 

Starfsleyfisgjald

2 tímagjöld

 

og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, og eftirlitsgjald

 
 

viðkomandi fyrirtækjaflokks ásamt auglýsingakostnaði ef við á

 

Önnur leyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun s.s. tóbaksöluleyfi:

 

Starfsleyfisgjald

2 tímagjöld

 

og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar,

 
 

úttektar og frágangs, ásamt auglýsingakostnaði ef við á.

 

Fyrir húsnæðis- og skipaskoðun:

4 tímagjöld

Starfsemi sem er eftirlitsskyld en er ekki á lista í viðauka greiðir eftirlitsgjald eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

4. gr.

Gjald skv. 3. gr. greiðist við afhendingu leyfisbréfs og reiknast dráttarvextir 30 dögum eftir útgáfudag leyfis.

5. gr.

Fyrir vottorð sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gefur út samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og fyrir eiturbeiðnir skal greiða hálft tímagjald.

Gjald fyrir þjónustuverkefni greiðist samkvæmt reikningi.

Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Suðurlands er heilbrigðiseftirlitinu heimilt að gera sérstakan reikning vegna þeirra, eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

Verk sem unnin eru skv. ákvæðum samþykkta settum samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir eru gjaldfærð eins og um þjónustuverkefni sé að ræða nema um annað hafi verið samið.

Eftirfylgniferðir og úttektir umfram það sem innifalið er í eftirlitsgjaldi greiðast skv. tíma­gjaldi viðkomandi fyrirtækjaflokks.

6. gr.

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands innheimtir öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari og sbr. fylgi­skjal sem birt er með gjaldskránni.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unar­varnir, með síðari breytingum.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni er heimilt að innheimta með fjárnámi.

7. gr.

Gjalddagi gjalda samkvæmt 2. gr. er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins inn­heimtu­kostnaðar. Sama á við um önnur gjöld skv. gjaldskránni.

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af aðildarsveitarfélögunum skv. 12. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, 21. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum og samkvæmt 8. gr. tóbaksvarnalaga nr. 6/2002 með síðari breytingum, stað­festist hér með til að öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1176/2013 fyrir matvæla-, heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit á svæði Heilbrigðiseftirlits Suður­lands.

Selfossi, 29. desember 2014.

F.h. heilbrigðisnefndar Suðurlands,

Elsa Ingjaldsdóttir framkvæmdastjóri.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 15. janúar 2015