Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 159/2007

Nr. 159/2007 20. desember 2007
LÖG
um breytingu á siglingalögum, nr. 34 19. júní 1985, með síðari breytingum.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á 177. gr. laganna:
    a.    Í stað fjárhæðarinnar „46.666 SDR“ í 1. mgr. kemur: 175.000 SDR.
    b.    Orðin „þó að hámarki 25 milljónir SDR“ í 1. mgr. falla brott.
    c.    Í stað fjárhæðarinnar „333.000 SDR“ í 2. mgr. kemur: 2.000.000 SDR.
    d.    Í stað orðanna „500 rúmlestir“ í 2. mgr. kemur: 2.000 tonn.
    e.    1.–3. tölul. 2. mgr. orðast svo: 
           1.    fyrir hvert tonn frá 2.001 að 30.000 tonnum, um 800 SDR; 
           2.    fyrir hvert tonn frá 30.001 að 70.000 tonnum, um 600 SDR; 
           3.    fyrir hvert tonn umfram 70.000 tonn, um 400 SDR.
    f.     4. tölul. 2. mgr. fellur brott.
    g.    Í stað fjárhæðarinnar „167.000 SDR“ í 3. mgr. kemur: 1.000.000 SDR.
    h.    Í stað orðanna „500 rúmlestir“ í 3. mgr. kemur: 2.000 tonn.
    i.     1.–3. tölul. 3. mgr. orðast svo: 
           1.    fyrir hvert tonn frá 2.001 að 30.000 tonnum, um 400 SDR; 
           2.    fyrir hvert tonn frá 30.001 að 70.000 tonnum, um 300 SDR; 
           3.    fyrir hvert tonn umfram 70.000 tonn, um 200 SDR.
    j.     Í stað orðsins „lestir“ í 5. og 6. mgr. kemur: tonn.
    k.    1. málsl. 7. mgr. orðast svo: Þar sem nefnd er tonnatala skips er átt við brúttótonn sem reiknuð eru samkvæmt reglum í viðauka I við alþjóðasamning um mælingar skipa frá 1969.

2. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á 180. gr. laganna:
    a.    Í stað orðanna „alþjóðasáttmála frá 19. nóvember 1976, um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanns“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: bókun frá 2. maí 1996 til breytinga á samningi um takmörkun ábyrgðar á sjóréttarkröfum frá 19. nóvember 1976.
    b.    Í stað orðanna „alþjóðasáttmála þeim sem nefndur er“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: bókun þeirri sem nefnd er.
    c.    Í stað orðanna „alþjóðasáttmála þeim“ í 3. mgr. kemur: bókun þeirri.

3. gr.
    Í stað orðanna „alþjóðasáttmála þeim“ í 1. mgr. 183. gr. laganna kemur: bókun þeirri.

4. gr.
    Í stað orðanna „forvaxta (diskonto) á hverjum tíma að viðbættum 2% p.a.“ í lok 185. gr. laganna kemur: vaxta skv. 2. málsl. 4. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu.

5. gr.
    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2009.

Gjört á Bessastöðum, 19. desember 2007.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Kristján L. Möller.

A deild - Útgáfud.: 28. desember 2007