HANDHAFAR VALDS FORSETA ÍSLANDS samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru: 1. gr.
Lög nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf., falla brott.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 23. júní 2011.
Steingrímur J. Sigfússon. | Ásta R. Jóhannesdóttir. (L. S.) | Markús Sigurbjörnsson. |
Steingrímur J. Sigfússon. |