Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 634/2009

Nr. 634/2009 6. júlí 2009
REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006 um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.

1. gr.

Í stað orðanna „44. gr.“ í 2. gr. kemur: 6. mgr. 48. gr.

2. gr.

2. málsl. b-liðar 1. mgr. 3. gr. orðast svo: Vistmaður skal hafa 480.000 kr. frítekjumark vegna atvinnutekna við útreikning vistunarframlags.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 6. júlí 2009.

Árni Páll Árnason.

Ágúst Þór Sigurðsson.

B deild - Útgáfud.: 20. júlí 2009