Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 15/2011

Nr. 15/2011 13. janúar 2011
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1171/2009 (um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009, frá 29. maí 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1171/2009 frá 30. nóvember 2009 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) 9 og alþjóðlegan reikn­ingsskilastaðal (IAS-staðal) 39.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1171/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB, nr. 71/2010, 16. desember 2010, bls. 327.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 94/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB, nr. 59/2010, 21. október 2010, bls. 20.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um árs­reikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja árs­reikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskila­staðla og öðlast þegar gildi.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 13. janúar 2011.

Árni Páll Árnason.

Helga Jónsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 17. janúar 2011