Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 885/2011

Nr. 885/2011 29. september 2011
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 39/2009 um Kolvetnisrannsóknasjóð.

1. gr.

Í stað orðanna „einum fulltrúa hvers leyfishafa“ í 2. málsl. 1. gr. reglugerðarinnar, kemur:

tveimur fulltrúum leyfishafa.

2. gr.

1. tölul. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

1. stofnframlög nýrra leyfishafa sem skulu nema 2,5 milljónum íslenskra króna á hvert leyfi,

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. gr. laga nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, tekur þegar gildi.

Iðnaðarráðuneytinu, 29. september 2011.

Katrín Júlíusdóttir.

Þórður Reynisson.

B deild - Útgáfud.: 30. september 2011