Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 16. janúar 2008 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á deiliskipulagi Krikahverfis vegna Litlakrika 25. Skipulagsbreytingin felst í stækkun lóðar og byggingarreits til norðurs, breytingu á gangstétt og færslu þriggja langsumbílastæða við götu að vesturmörkum lóðarinnar, sem skerðist þeim megin sem því nemur. Deiliskipulagsbreyting þessi hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 27. febrúar 2008, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |