1. gr. Innleiðing. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/21/EB frá 23. apríl 2009 um samræmi við kröfur fánaríkis, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2012 frá 30. mars 2012, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 43, 2. ágúst 2012, bls. 53 að því er varðar tilskipun 2009/21/EB, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/21/EB birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 38, 5. júlí 2012, bls. 12. 2. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 3. gr. laga nr. 6/1996 um Siglingastofnun Íslands og öðlast þegar gildi. Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/21/EB frá 23. apríl 2009 um samræmi við kröfur fánaríkis. Innanríkisráðuneytinu, 30. nóvember 2012. Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir. |