Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 500/2015

Nr. 500/2015 19. maí 2015

AUGLÝSING
um niðurfellingu reglna um val á nemendum til náms í iðjuþjálfun við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri.

1. gr.

Samkvæmt ákvörðun fræðasviðsfundar heilbrigðisvísindasviðs þann 19. mars 2013 var ákveðið að fella niður samkeppnispróf í iðjuþjálfunarfræðideild frá og með 1. ágúst 2013.

Með vísan til þess hefur háskólaráð fellt úr gildi reglur nr. 414/2006 um val á nemendum til náms í iðjuþjálfun við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri.

2. gr.

Auglýsing þessi sem sett er með vísan til 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 með síðari breytingum tekur þegar gildi.

Háskólanum á Akureyri, 19. maí 2015.

Eyjólfur Guðmundsson rektor.

Ögmundur Knútsson,    
varaforseti háskólaráðs.


B deild - Útgáfud.: 5. júní 2015