Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 101/2009

Nr. 101/2009 18. september 2009

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 177/2007, um Stjórnarráð Íslands.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Að ég, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, staðfesti svohljóðandi reglu­gerð um breytingu á reglugerð nr. 177/2007, um Stjórnarráð Íslands:

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir 4. tölul. kemur nýr töluliður sem orðast svo: Forustu og verkstjórn innan Stjórnar­ráðs Íslands.
  2. Á eftir orðunum „Skiptingu starfa“ í 6. tölul. kemur: og samhæfingu þeirra.
  3. Á eftir 7. tölul. kemur nýr töluliður sem orðast svo: Umbætur í löggjöf og stjórn­sýslu.
  4. 12., 14., 17. og 18. tölul. falla brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna „Dóms- og kirkjumálaráðuneyti“ í inngangsmálslið kemur: Dóms­mála- og mannréttindaráðuneyti.
  2. 14. tölul. fellur brott.
  3. Á eftir orðunum „til Alþingis“ í 16. tölul. kemur: kosningar til sveitarstjórna.
  4. Við bætast þrír nýir töluliðir sem verða 25.-27. tölul. og orðast svo:
    1. Fasteignaskráningu og fasteignamat.
    2. Neytendavernd, þar á meðal alferðir.
    3. Vog, mál og faggildingu. Vöruöryggi.

3. gr.

9., 12. og 13. tölul. 5. gr. reglugerðarinnar falla brott.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins „Menntamálaráðuneyti“ í inngangsmálslið kemur: Mennta- og menningar­mála­ráðuneyti.
  2. Á eftir orðinu „fjölmiðla“ í 10. tölul. kemur: þ.m.t. prentmiðla.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins „Samgönguráðuneyti“ í inngangsmálslið kemur: Samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneyti.
  2. Orðið „sveitarstjórnarkosningar“ í 10. tölul. fellur brott.

6. gr.

Á eftir orðunum „erlend ríki“ í 4. tölul. 12. gr. reglugerðarinnar kemur: þ.m.t. norræna samvinnu.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins „Viðskiptaráðuneyti“ í inngangsmálslið kemur: Efnahags- og viðskipta­ráðuneyti.
  2. 6. og 7. tölul. falla brott.
  3. Við bætast fimm nýir töluliðir sem verða 10.-14. tölul. og orðast svo:
    1. Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF).
    2. Hagstjórn almennt.
    3. Mat á þróun og horfum í efnahagsmálum.
    4. Hagstofu Íslands.
    5. Endurskoðendur og framkvæmd bókhalds- og ársreikningalaga.

8. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 8. gr. laga nr. 73/1969, öðlast gildi 1. október 2009.

Gjört á Bessastöðum, 18. september 2009.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Jóhanna Sigurðardóttir.


A-deild - Útgáfud.: 21. september 2009

  Til baka