Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1190/2008

Nr. 1190/2008 23. desember 2008

REGLUGERÐ
um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2009:

 

frítekjumark kr.

efra tekjumark kr.

Vegna fjármagnstekna (allar bætur)

98.640     

 

Tekjutrygging vegna eigin atvinnutekna

  

skv. 2. málsl. b-liðar 2. mgr. 16. gr.

1.315.200     

 

Tekjutrygging vegna eigin atvinnutekna

  

skv. ákvæði til bráðabirgða

1.315.200     

 

Ellilífeyrir skv. 2. mgr. 17. gr.

2.575.220     

3.981.332     

Örorkulífeyrir skv. 5. mgr. 18. gr.

2.575.220     

3.981.332     

Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr.

2.575.220     

3.961.268     

Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr.

2.575.220     

3.981.332     

Aldurstengd örorkuuppbót (100%)

  

skv. 1. mgr. 21. gr.

 

3.981.332     

Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna

  

skv. 3. málsl. 3. mgr. 22. gr.

328.800     

 

Vasapeningar skv. 2. og 3. málsl. 8. mgr. 48. gr.

 

773.446     

Vasapeningar vegna vinnu á stofnun

  

skv. 5. og 6. málsl. 8. mgr. 48. gr.

812.774     

 

2. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2009:

 

frítekjumark kr.

efra tekjumark kr.

Endurhæfingarlífeyrir skv. 1. mgr. 7. gr.

2.575.220     

3.981.332     

3. gr.

Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 595/1997 um heimilisuppbót og frekari uppbætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir hvern mánuð ársins 2009:

  

efra tekjumark kr.

Frekari uppbætur skv. 1. mgr. 9. gr.

 

198.650     

4. gr.

Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki skerðir bætur.

Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður að fullu.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1225/2007 um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar, með síðari breytingum.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. desember 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ágúst Þór Sigurðsson.


B-deild - Útgáfud.: 30. desember 2008

  Til baka