Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 480/2010

Nr. 480/2010 18. maí 2010
REGLUR
um Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands.

1. gr.

Almennt.

Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands er rannsókna- og þjónustustofnun sem heyrir undir háskólaráð. Stofnunin er vettvangur fyrir samstarf háskólans um ýmis verkefni við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga.

2. gr.

Hlutverk.

Meginhlutverk stofnunarinnar er að efla rannsókna- og fræðastarf Háskóla Íslands um land allt með því að:

  1. styrkja rannsóknir á landsbyggðinni með eigin rannsóknum og samstarfi við aðra,
  2. nýta staðbundnar aðstæður í umhverfi og atvinnugreinum til rannsókna og auka þekkingu á þeim,
  3. veita nemendum aðstöðu til vettvangsnáms,
  4. taka þátt í starfsemi þekkingarsetra,
  5. styrkja tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf.

Auk þess vinnur stofnunin að þeim verkefnum sem rektor og háskólaráð fela henni.

3. gr.

Skipulag.

Undir stofnunina heyra rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands. Rannsókna- og fræðasetrin eru faglega sjálfstæðar einingar.

Stjórn stofnunarinnar, sbr. 5. gr., tekur ákvörðun um uppbyggingu rannsókna- og fræðasetra og skipulag þeirra og setur þeim markmið í samráði við rektor. Stjórnin skal kynna fyrir háskólaráði áform um að setja ný setur á laggirnar eða leggja niður starfandi setur áður en ákvörðun er tekin.

Um starfsemi hvers seturs skal að jafnaði gerður samstarfssamningur við þá aðila sem tengjast starfseminni á hverjum stað. Heimilt er í slíkum samningi að kveða á um stofnun fagráðs sem vinni með forstöðumanni og stjórn stofnunarinnar.

4. gr.

Aðstaða.

Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, húsnæði og búnað, svo sem kostur er og eftir því sem um er samið við samstarfsaðila.

Stofnunin veitir starfsliði sínu aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.

5. gr.

Stjórn.

Rektor skipar stofnuninni fimm manna stjórn til þriggja ára í senn án tilnefningar og ákveður hver gegnir formannsstörfum. Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Ef ekki er ráðinn forstöðumaður að stofnuninni kemur formaður stjórnar fram fyrir hönd stofnunarinnar og annast daglegan rekstur hennar.

6. gr.

Stjórnarfundir.

Forstöðumaður, sbr. 8. gr., í samráði við formann stjórnar, boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrirvara.

Fundarboð skal greina dagskrá fundar.

Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef rektor ber fram slíka ósk og hefur þá hann eða sá sem sækir fund í umboði hans, málfrelsi og tillögurétt á fundinum.

Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.

Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundargerða skulu send rektor og aðilum samstarfssamninga sem gerðir hafa verið um starfsemina á einstökum stöðum.

Ef ráðinn er forstöðumaður stofnunarinnar þá situr hann stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt, en án atkvæðisréttar.

7. gr.

Verkefni stjórnar.

Stjórn stofnunarinnar leiðir samstarf háskólans við aðila á landsbyggðinni og getur í samráði við forstöðumann og fagráð einstakra setra haft frumkvæði að því að skapa verkefni og afla fjár til þeirra.

Stjórnin veitir forstöðumönnum einstakra setra, sbr. 9. gr., leiðsögn og aðstoð eftir því sem unnt er.

Stjórnin tekur stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina.

Stjórnin samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun fyrir einstök setur og stofnunina í heild og gerir tillögu að samþykktum um þjónusturannsóknir sem háskólaráð staðfestir.

Stjórnin stendur ásamt rektor að gerð samstarfssamninga um einstök rannsókna- og fræðasetur og hefur eftirlit með framkvæmd þeirra samninga sem gerðir hafa verið.

Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.

8. gr.

Forstöðumaður stofnunar fræðasetra og aðrir starfsmenn.

Heimilt er rektor, að fenginni tillögu stjórnar, að ráða forstöðumann fyrir starfsemi stofnunarinnar. Skal sá sem ráðinn er forstöðumaður að jafnaði hafa meistarapróf eða annað sambærilegt háskólapróf. Rektor setur forstöðumanni erindisbréf.

Um ráðningu annars starfsfólks, þar með talið forstöðumanna einstakra rannsókna- og fræðasetra, fer að öðru leyti eftir ákvæðum sameiginlegra reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

Forstöðumaður Stofnunar fræðasetra er í starfi sínu ábyrgur gagnvart stjórn og rektor.

9. gr.

Forstöðumenn rannsókna- og fræðasetra.

Hverju rannsókna- og fræðasetri stýrir forstöðumaður sem stjórn Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands ræður. Skal sá sem ráðinn er forstöðumaður að jafnaði hafa doktorspróf eða annað sambærilegt háskólapróf. Hann annast daglega starfsemi á hverjum stað, hefur umsjón með fjármálum og skipuleggur samstarfsverkefni.

Heimilt er með sérstökum samningi milli stjórnar og forseta viðkomandi fræðasviðs og eftir atvikum rektors, að tengja starf forstöðumanns rannsókna- og fræðaseturs við starf háskólakennara og koma þannig á virku samstarfi milli setursins og viðkomandi háskóladeildar. Hlutfall starfs forstöðumanns milli stjórnsýsluverkefna og akademísks starfs er ákveðið í slíkum samningi.

10. gr.

Ársfundur.

Stjórn efnir til ársfundar stofnunarinnar sem haldin er á vormánuðum. Ársfundur er öllum opinn og skal auglýstur opinberlega bæði innan háskólans og á almennum vettvangi. Stjórnin býður gestum til þátttöku í fundinum.

Ársskýrsla stofnunarinnar og fjárhagsáætlun skulu liggja frammi á fundinum.

11. gr.

Fjármál.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans.

Tekjur Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands eru eftirfarandi:

  1. fjárveitingar skv. ákvörðun háskólaráðs eða rektors,
  2. fé sem stjórn aflar til starfseminnar með samningum við samstarfsaðila,
  3. styrkir til einstakra verkefna eða starfseminnar í heild,
  4. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,
  5. aðrar tekjur, t.d. gjafir og framlag úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.

Árlega skal leggja fyrir háskólaráð sjálfstætt og endurskoðað reikningsuppgjör stofnunarinnar. Ef um er að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starfsemi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri rannsókna- og fræðasetranna og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.

12. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 4. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 26. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 176/2003 um Stofnun fræðasetra.

Háskóla Íslands, 18. maí 2010.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 4. júní 2010