Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 359/2013

Nr. 359/2013 8. apríl 2013
AUGLÝSING
um fjöldatakmörkun í hjúkrunarfræði við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri.

1. gr.

Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms á vormisseri 1. námsárs í hjúkrunarfræði á vormisseri 2014 við heilbrigðisvísindasvið miðast við grunntöluna 50 nemendur.

2. gr.

Ákvörðun þessi, tekin af háskólaráði, skv. lögum nr. 85/2008 með síðari breytingu, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 417/2012 um fjöldatakmörkun í hjúkrunarfræði við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri.

Háskólanum á Akureyri, 8. apríl 2013.

Stefán B. Sigurðsson rektor.

B deild - Útgáfud.: 23. apríl 2013