Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 266/2014

Nr. 266/2014 27. febrúar 2014
AUGLÝSING
um umferð í Mosfellsbæ.

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfissviðs Mosfellsbæjar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgar­svæðinu ákveðið að Álafossvegur verði gerður að vistgötu.

Vistgata er táknuð með umferðarmerkinu D14.11 vistgata.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 27. febrúar 2014.

Stefán Eiríksson.

B deild - Útgáfud.: 18. mars 2014