Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1254/2011

Nr. 1254/2011 23. desember 2011
AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2012.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármálaráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2012 verður 22,9% af tekjuskattsstofni að 2.760.000 kr., 25,8% af tekjuskattsstofni frá 2.760.001 kr. að 8.452.400 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 8.452.401 kr. Meðalútsvar á árinu 2012 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,44%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2012 verður því 37,34% af tekjuskattsstofni að 2.760.000 kr., 40,24% af tekjuskattsstofni frá 2.760.001 kr. að 8.452.400 kr. og 46,24% af tekjuskattsstofni frá 8.452.401 kr.

Sé tekjuskattsstofn annars samskattaðs aðila hærri en 8.452.400 kr. skal það sem umfram er skattlagt með 25,8% skatthlutfalli allt að helmingi þeirrar fjárhæðar sem tekjuskattsstofn þess tekjulægri er undir 8.452.400 kr., þó reiknast 25,8% skatthlutfall aldrei af hærri fjárhæð en 2.846.200 kr. við þessar aðstæður.

Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2012 vera 558.385 krónur, eða 46.532 krónur að meðaltali á mánuði.

Fjármálaráðuneytinu, 23. desember 2011.

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Sóley Ragnarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2011