Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 229/2010

Nr. 229/2010 3. mars 2010
REGLUGERÐ
um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup.

1. gr.

Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 78. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup skulu vera sem hér segir:

Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:

Vörusamningar

16.750.000 kr.

Þjónustusamningar

16.750.000 kr.

Verksamningar

649.230.000 kr.

Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:

Vörusamningar

25.862.000 kr.

Þjónustusamningar

25.862.000 kr.

Verksamningar

649.230.000 kr.

2. gr.

Viðmiðunarfjárhæðir vegna kostnaðarþátttöku opinberra aðila sbr. 13. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup skulu vera 649.230.000 kr. vegna verksamninga og 25.862.000 kr. vegna þjónustusamninga.

3. gr.

Viðmiðunarfjárhæð vegna kynningarauglýsingar á Evrópska efnahagssvæðinu vegna áætlaðra kaupa á einu ári er 63.870.000 kr. fyrir vöru- og þjónustusamninga og 649.230.000 kr. fyrir verksamninga, sbr. 35. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB er birt sem fylgiskjal við lög nr. 84/2007 um opinber innkaup.

4. gr.

Viðmiðunarfjárhæð vegna gerðar sérleyfissamninga um verk er 649.230.000 kr., sbr. 56. og 63. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB.

5. gr.

Viðmiðunarfjárhæð vegna hönnunarsamkeppni, sbr. 67. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB, skulu vera sem hér segir:

Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér: 16.750.000 kr.

Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér: 25.862.000 kr.

6. gr.

Viðmiðunarfjárhæðir skv. 1.-5. gr. reglugerðar þessarar gilda einnig um útboðsskyldu vegna innkaupa samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup sem Ísland er aðili að.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 78. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup og tekur þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 807/2007 um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup.

Fjármálaráðuneytinu, 3. mars 2010.

F. h. r.

Þórhallur Arason.

Egill Tryggvason.

B deild - Útgáfud.: 17. mars 2010