Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 863/2011

Nr. 863/2011 8. september 2011
SAMÞYKKT
um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar.

1. gr.

Byggingarfulltrúinn í Garðabæ fer með verkefni sem mælt er fyrir um í lögum nr. 160/2010 um mannvirki og ákvæðum í þeim reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna, þar á meðal útgáfu byggingarleyfa.

2. gr.

Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis af hálfu byggingarfulltrúa samkvæmt III. kafla laga um mannvirki er að bæjarráð hafi samþykkt útgáfuna en bæjarráð annast verkefni byggingarnefndar samkvæmt 7. gr. laga um mannvirki. Byggingarfulltrúi skal hafa sent bæjarstjóra tillögur sínar sem leggja skal fyrir bæjarráð eigi síðar en þremur sólar­hringum fyrir bæjarráðsfund.

3. gr.

Byggingarfulltrúi skal hafa samráð við skipulagsnefnd um hvert það mál sem hann telur að varði verksvið nefndarinnar.

Byggingarfulltrúi skal leita samþykkis skipulagsnefndar áður en byggingarleyfi er veitt varði breyting á mannvirki útlit þess og form nema breyting sé óveruleg.

4. gr.

Um málsmeðferð gilda að öðru leyti ákvæði sveitarstjórnarlaga, laga um mannvirki, samþykktar um stjórn og fundarsköp Garðabæjar og stjórnsýslulaga, eftir því sem við á.

5. gr.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Garðabæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um afgreiðslu byggingarfulltrúans í Garðabæ á byggingar­leyfis­umsóknum, nr. 249 frá 5. apríl 2000.

Umhverfisráðuneytinu, 8. september 2011.

F. h. r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Hafsteinn Pálsson.

B deild - Útgáfud.: 23. september 2011