Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1009/2008

Nr. 1009/2008 17. október 2008
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi athafnahverfis á Tungumelum, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 24. september 2008 samþykkt breytingar á deili­skipulagi athafnahverfis á Tungumelum. Um er að ræða breytingar á byggingar­reitum og lóðarmörkum næst Vesturlandsvegi, til aðlögunar að breyttri útfærslu mislægra vegamóta og breyttu veghelgunarsvæði.
Deiliskipulagsbreyting þessi hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. Nýr upp­dráttur og skilmálar koma í stað áður samþykkts uppdráttar og skilmála, sem falla þar með úr gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 17. október 2008,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 4. nóvember 2008