Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1280/2012

Nr. 1280/2012 18. desember 2012
GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Innheimta skal gjald fyrir sorphirðu í Reykjavík svo sem nánar greinir í gjaldskrá þessari.

2. gr.

Sorphirðugjald fyrir blandað heimilissorp:

Gjaldflokkur nr.

Tegund íláts og hirða

Gjald kr./ílát á ári

A.1

240 l græn sorptunna, sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 20 daga fresti

9.300

A.2

240 l græn sorptunna, sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 20 daga fresti

11.550

A.3

240 l grá sorptunna sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 10 daga fresti

18.600

A.4

240 l grá sorptunna sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 10 daga fresti

23.100

A.5

660 l ker sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 10 daga fresti

51.150

A.6

660 l ker sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 10 daga fresti

63.525

Sorphirðugjald fyrir flokkað heimilissorp, blá tunna:

Gjaldflokkur nr.

Tegund íláts og hirða

Gjald kr./ílát á ári

B.1

240 l blá sorptunna, sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 20 daga fresti

6.500

B.2

240 l blá sorptunna, sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 20 daga fresti

8.800

Sorphirðugjaldi er ætlað að standa undir kostnaði við sorpílát, hirðu og förgun sorps.

Merktir pokar fyrir tilfallandi umframsorp: 650 kr./stk.

Gjald fyrir aukalosun: 3.000 kr./ferð auk 480 kr./ílát sem losað er.

Gjald vegna reksturs endurvinnslustöðva: 6.300 kr./íbúð. Gjaldi vegna endurvinnslu­stöðva er ætlað að standa undir kostnaðarhlutdeild Reykjavíkurborgar í rekstri endur­vinnslu­stöðva Sorpu bs.

3. gr.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unar­varnir og 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Gjöld samkvæmt gjald­skránni má innheimta með fjárnámi. Innheimtudeild Reykjavíkurborgar annast innheimtu gjalda skv. gjaldskrá þessari.

4. gr.

Gjalddagi gjalda skv. 2. gr. er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttar­vextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöld ekki greidd á eindaga.

5. gr.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af borgarráð Reykjavíkurborgar með heimild í 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, og öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Reykjavíkurborg nr. 1024/2010.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 18. desember 2012.

Jón Gnarr.

B deild - Útgáfud.: 11. janúar 2013