Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 154/2010

Nr. 154/2010 10. febrúar 2010
REGLUR
um val nemenda til náms í næringarfræði við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.

1. gr.

Ákvörðun um fjöldatakmörkun.

Heilbrigðisvísindasvið, að tillögu matvæla- og næringarfræðideildar, leggur fyrir háskólaráð, ef þörf krefur, rökstuddar tillögur um fjölda stúdenta sem unnt er að taka til náms í næringarfræði. Skal beiðni frá deildinni, þar að lútandi, send háskólaráði fyrir lok nóvember. Háskólaráð afgreiðir tillögur matvæla- og næringarfræðideildar eigi síðar en í janúar.

Ef fjöldatakmörkun er ákveðin fer val stúdenta til náms fram í samræmi við ákvæði reglna þessara.

2. gr.

Fyrirkomulag samkeppnisprófa.

Samkeppnispróf fyrir skráða stúdenta í næringarfræði eru haldin í desember að lokinni kennslu á haustmisseri. Prófað er í öllum þeim námskeiðum, sem kennd eru á haustmisseri 1. námsárs og verða stúdentar að taka öll prófin til þess að koma til álita við valið. Ekki er hægt að fá viðurkennd eldri próf.

Lágmarkseinkunn í námskeiðum á haustmisseri 1. árs er 5,0. Þeim stúdentum, sem þreyta öll samkeppnisprófin og ná tilskilinni lágmarkseinkunn í öllum námskeiðum, er raðað eftir lækkandi heildareinkunn. Ef fleiri stúdentar þreyta öll samkeppnisprófin en sá fjöldi sem ákveðinn hefur verið, sbr. 1. gr. (numerus clausus), öðlast einungis þeir rétt til áframhaldandi náms í næringarfræði við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands sem bestum árangri ná á samkeppnisprófum. Enn fremur er skilyrði að stúdent hafi náð tilskilinni lágmarkseinkunn í öllum námskeiðum haustmisseris 1. námsárs. Ef tveir eða fleiri stúdentar eru jafnir í síðasta sæti skulu þeir báðir/allir eiga rétt til setu á vormisseri 1. námsárs.

3. gr.

Vægi greina og námsmat.

Prófað verður úr öllum námskeiðum sem metin eru til námseininga á haustmisseri fyrsta námsárs. Vægi þeirra er ákveðið af matvæla- og næringarfræðideild og er eftirfarandi:

25%

Inngangur að næringarfræði.

20%

Matvælaframleiðsla og matvælaiðnaður.

20%

Efnafræði I.

20%

Almenn líffærafræði og fósturfræði fyrir næringarfræðinema.

15%

Stórsæ og smásæ líffæra- og vefjafræði meltingarlíffæra.

Einkunn fyrir hvert námskeið er gefin með tveimur aukastöfum, frá 0,00-10,00. Þær einkunnir eru síðan aðlagaðar vægi greinanna. Heildareinkunn í samkeppnisprófunum fæst með því að leggja saman einkunnir úr einstökum námskeiðum, sem þannig hafa verið vegnar. Þessi einkunn, reiknuð með tveimur aukastöfum, er lögð til grundvallar við niðurröðun stúdenta varðandi áframhaldandi nám.

4. gr.

Birting einkunna, sjúkrapróf o.fl.

Stefnt skal að því að einkunnir úr samkeppnisprófi að loknu haustmisseri 1. námsárs í næringarfræði verði birtar fyrir 10. janúar.

Sjúkrapróf verða haldin, ef nauðsyn krefur, svo fljótt sem auðið er. Ekki eru haldin upptökupróf.

Að öllu jöfnu er stúdentum ekki veitt námsleyfi á fyrsta námsári.

5. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands að fenginni tillögu heilbrigðisvísindasviðs, eru settar með heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla.

Reglur þessar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 10. febrúar 2010.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 25. febrúar 2010