Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 297/2012

Nr. 297/2012 23. mars 2012
AUGLÝSING
(II) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Grýtubakkahreppur.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta Grenivíkur með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

c-liður 1. gr. reglugerðarinnar fellur niður.

b)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., eftir breytingu sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 55 þorskígildistonnum úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 127 þorskígildistonnum skal skipt hlutfallslega til sömu skipa, miðað við úthlutað aflamark á grundvelli aflahlutdeildar í bolfiski 1. september 2011 í þorskígildum talið.

Akureyrarbær.

Hrísey.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta Hríseyjar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem gerð hafa verið út frá Hrísey í að minnsta kosti 9 mánuði á árinu 2011, af því aflamarki sem fallið hefur til við­kom­andi byggðarlags.

Blönduósbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta Blönduósbæjar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 50% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og hinum 50% skal skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið, á Blönduósi eða Skagaströnd, á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011.

b)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu innan Blönduóss á tímabilinu frá 1. september 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

Sveitarfélagið Skagaströnd.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta Sveitarfélagsins Skagastrandar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

b-liður 1. gr. reglugerðarinnar fellur niður.

b)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 60 þorskígildistonnum úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar eftir breytingu og áttu hlut­deild í Húnaflóarækju 1. september 2011 og 240 þorskígildistonnum verði skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðar­lags á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011.

c)

Hámarksúthlutun verður 75 þorskígildistonn á skip. Hámarkið gildir um samanlagða úthlutun úr báðum flokkum, þó skal við úthlutun fyrst reikna að fullu byggðakvóta sem úthlutað er vegna innfjarðarrækjuveiða (Húnaflóa­rækja).

d)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiski­skipum er skylt að landa innan byggðarlagsins á tímabilinu frá 1. septem­ber 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

Strandabyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta Strandabyggðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 50% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 50% skal skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabil­inu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011.

b)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiski­skipum er skylt að landa til vinnslu innan byggðarlagsins á tímabilinu frá 1. septem­ber 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

Sveitarfélagið Vogar.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta Sveitarfélagsins Voga með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 50% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 50% skal skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­­ígildis­­stuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011.

b)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiski­skipum er skylt að landa til vinnslu innan byggðarlagsins á tímabilinu frá 1. septem­ber 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

Árneshreppur.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta Árneshrepps með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiski­skipum er skylt að landa innan byggðarlagsins á tímabilinu frá 1. septem­ber 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

Fjallabyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta byggðar­laga Fjallabyggðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðar­lags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011.

b)

Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

c)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiski­skipum er skylt að landa til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. septem­ber 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

Vesturbyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta neðangreindra byggðarlaga Vesturbyggðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

Vesturbyggð: Brjánslækur/Barðaströnd.

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðar­lagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðar­lags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. septem­ber 2010 til 31. ágúst 2011.

b)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiski­skipum er skylt að landa til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. septem­ber 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

Vesturbyggð: Bíldudalur.

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 2/3 hlutum skipt hlutfallslega til fiskiskipa sem landað hafa afla til vinnslu á Bíldudal á tímabilinu 1. september 2011 til 31. desember 2011. Eftir­stöðvunum 1/3 hluta skal skipt hlutfallslega, miðað við allan landaðan botn­fisk­afla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið á tímabil­inu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011.

b)

Brott fellur málsgreinin: Afli af fiskiskipum sem landað er í byggðarlagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi byggðarlags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

Vopnafjörður.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta Vopna­fjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður: Byggðakvóta Vopnafjarðar skal skipta á milli þeirra skipa sem sækja um og uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðarinnar þannig: ¼ hluta úthlutaðs byggðakvóta 55,25 þorsk­ígildis­tonnum eftir brúttótonnum skips, og ¼ úthlutaðs byggðakvóta 55,25 þorsk­ígildis­tonnum skal skipt jafnt á milli skipa. Eftirstöðvunum sem er ½ úthlutaðs byggðakvóta 110,5 þorskígildistonnum skal skipt í hlutfalli við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, sem landað var á Vopnafirði á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011.

b)

Ekkert fiskiskip yfir 1.000 brúttótonnum fær úthlutun.

c)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa á Vopnafirði, til vinnslu þar eða á Bakkafirði, á tímabilinu 1. september 2011 til 31. ágúst 2012, afla sem nemur, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

Húnaþing vestra.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta Húna­þings vestra með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Byggða­kvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 675/2009 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglu­gerðar nr. 1182/2011 að öðru leyti. Skipting er eftirfarandi: 35% skal skipt jafnt milli ofangreindra skipa og 65% milli ofangreindra skipa þannig að til viðmið­unar verði löndunarhæsta ár skips í Hvammstangahöfn í þorskígildum talið. Viðmiðunarárin eru 3 síðustu fiskveiðiár, nú 2008/2009, 2009/2010 og 2010/2011.

b)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiski­skipum er skylt að landa innan byggðarlagsins á tímabilinu frá 1. septem­ber 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. mars 2012.

F. h. r.

Arndís Á. Steinþórsdóttir.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 26. mars 2012