Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 11. apríl 2007 í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulag fyrir lóð Skálatúns. Tillagan felur í sér nýja afmörkun lóðarinnar sem minnkar úr 8,7 ha í 6 ha. Norðvesturhorn hennar er skilgreint sem svæði til síðari nota, en á öðrum hlutum skipulagssvæðisins er gerð grein fyrir aðkomuleiðum, göngustígum, bílastæðum og byggingarreitum fyrir sambýli, íbúðarhús, dvalar-/endurhæfingarstofnun og stofnanatengt atvinnuhúsnæði, alls allt að 14.500 m² nýbygginga. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 19. febrúar 2008, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |