Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 11. apríl 2007 í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulag þriðja áfanga íbúðarhverfis í Helgafellslandi. Deiliskipulagið fjallar um 14,6 ha svæði syðst og vestast í fyrirhuguðu Helgafellshverfi, og er í því gert ráð fyrir 114 íbúðum á 57 lóðum, aðallega í sérbýli. Innan deiliskipulagsins meðfram Varmá og Skammadalslæk, sem afmarka skipulagssvæðið til suðurs, eru opin svæði sem eru undir hverfisvernd skv. aðalskipulagi. Varmá er á náttúruminjaskrá. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 29. júní 2007, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |