Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 1. mars 2010 staðfest breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024 frá 8. júlí 2003. Fyrirhugaðar eru breytingar á flutningskerfi raforku þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum og enduruppbyggingum háspennulína um Sandskeið til Hafnarfjarðar ásamt niðurrifi háspennulína frá Sandskeiði að Geithálsi. Breytingarnar innan sveitarfélagsins eru eftirfarandi: - Sogslína 2 (132 kV) fellur brott. Eftir stendur Sandskeiðslína 2 (220 kV) milli Geitháls og Sandskeiðs.
- Kolviðarhólslína 1 (220 kV) verður endurbyggð frá Kolviðarhóli að Sandskeiði.
- Kolviðarhólslína 2 (220 kV) ný lína frá Sandskeiði að Hamranesi.
- Búrfellslína 3 (400 kV) ný lína frá Sandskeiði að Hamranesi.
- Sandskeiðslína 1 (400 kV) ný lína frá Sandskeiði að Hrauntungum.
- Opið óbyggt svæði á Sandskeiði, 5 ha að stærð, breytist í iðnaðarsvæði þar sem gert er ráð fyrir tengivirki.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar. Breytingin öðlast þegar gildi. Umhverfisráðuneytinu, 1. mars 2010. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Logi Kjartansson. |