Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
340/2009
|
1. gr. Við 2. gr. bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi: Upplýsinga um eðliseiginleika efna skal aflað í samræmi við 13. gr. reglugerðar (EB) nr. 1907/2006. Efni sem eru markaðssett skulu vera pökkuð og merkt í samræmi við ákvæði reglugerðar um flokkun, merkingu og meðferð eiturefna, hættulegra efna og vörutegunda, sem innihalda slík efni, nr. 236/1990 og í samræmi við upplýsingar sem fást við beitingu ákvæða 12. og 13. greinar reglugerðar (EB) nr. 1907/2006. 2. gr. Við 9. gr. bætist eftirfarandi málsgrein, svohljóðandi: Reglugerð þessi er ennfremur sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2006/121/EB sem breytir tilskipun ráðsins nr. 67/548/EBE um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum um flokkun, pökkun og merkingu hættulegra efna, til að aðlaga hana reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (REACH) og stofnun Efnastofnunar Evrópu, sem vísað er til í 1. tl., XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2008, þann 5. júní 2008. 3. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 45/2008 um efni og efnablöndur. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Umhverfisráðuneytinu, 17. mars 2009. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Sigríður Auður Arnardóttir.
|
B-deild - Útgáfud.:
2. apríl 2009
|