Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið að biðskylda verði á umferð af lóðinni Bíldshöfða 20 gagnvart umferð um Bíldshöfða. Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 29. maí 2013. Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri. |