Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
647/2008
|
1. gr. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 207/2006 frá 7. febrúar 2006 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71, að því er varðar jöfnun réttinda og einföldun málsmeðferðar, sem vísað er til í VI. viðauka (félagslegt öryggi) við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2006 frá 7. júlí 2006, skal öðlast gildi hér á landi að því leyti sem ákvæði hennar lúta að lífeyristryggingum, atvinnuleysistryggingum og greiðslum í fæðingarorlofi. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 207/2006 fjallar að hluta til um sjúkratryggingar, slysatryggingar, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá heilbrigðisráðuneytinu nr. 367/2008 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um sjúkra- og slysatryggingar. Í reglugerð frá fjármálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. 2. gr. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 207/2006 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2006, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 52, 19. október 2006, bls. 16, er birt sem fylgiskjal með reglugerð heilbrigðisráðuneytisins nr. 367/2008. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 70. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 19. júní 2008. Jóhanna Sigurðardóttir. Ágúst Þór Sigurðsson.
|
B-deild - Útgáfud.:
3. júlí 2008
|