Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1186/2013

Nr. 1186/2013 27. desember 2013
REGLUGERÐ
um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum samkvæmt viðaukum IVA og IVB við tollalög.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðaukum IVA og IVB, með síðari breytingum, sbr. viðauka V, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

 Verðtollar

Magntollar

Tollskrárnr.:

kg/stk.

%

kr./kg/stk.

0208.9003

Rjúpur, frystar

01.01.-31.12.14

ótilgr.

0

0

0208.9007

Beinlaust hreindýrakjöt, fryst

01.01.-31.12.14

ótilgr.

0

878

Hreindýrakjöt með beini, fryst:

0208.9008

Skrokkar og hálfir skrokkar

01.01.-31.12.14

ótilgr.

0

0

0208.9009

Annað

01.01.-31.12.14

ótilgr.

0

878

0603.1202

Innflutningur á öðrum tíma (nellikur)

01.05.-30.11.14

ótilgr.

0

48

0603.1905

Innflutningur á öðrum tíma (lokaskegg, flamingóblóm, fuglamjólk og paradísarfuglablóm)

01.05.-30.11.14

ótilgr.

0

48

0701.9001

Bökunarkartöflur, 65 mm eða stærri

01.01.-31.12.14

ótilgr.

0

0

0703.9001

Blaðlaukur

01.01.-31.12.14

ótilgr.

0

0

0704.1000

Blómkál og hnappað spergilkál

01.01.-30.06.14

ótilgr.

0

0

0704.9002

Rauðkál

01.01.-30.06.14

ótilgr.

0

0

0704.9003

Kínakál

01.01.-30.06.14

ótilgr.

0

0

0704.9004

Spergilkál (Brassica oleracea var. Ita.)

01.01.-30.06.14

ótilgr.

0

0

0706.9002

Rauðrófur

01.01.-31.12.14

ótilgr.

0

0

0709.4000

Selja, önnur en seljurót

01.01.-30.06.14

ótilgr.

0

0

0709.5100

Sveppir af ættinni Agaricus

01.01.-31.12.14

ótilgr.

0

80

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins og reglugerðar nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. desember 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Rebekka Hilmarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2013