Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 776/2010

Nr. 776/2010 12. október 2010
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 636/2009 (um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009, frá 29. maí 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 636/2009 frá 22. júlí 2009 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikn­ingsskil (IFRIC-túlkun) nr. 15.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 636/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB, nr. 56/2010, 7. október 2010, bls. 74.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi EB, nr. 12/2009, 11. mars 2009, bls. 62.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikn­ingsskilastaðla og öðlast þegar gildi.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 12. október 2010.

Árni Páll Árnason.

Kjartan Gunnarsson.

B deild - Útgáfud.: 14. október 2010