Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 612/2013

Nr. 612/2013 14. júní 2013
SAMÞYKKT
um stjórn sveitarfélagsins Langanesbyggðar.

I. KAFLI

Um skipan sveitarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.

1. gr.

Skipan sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn sveitarfélagsins Langanesbyggðar er skipuð 7 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.

2. gr.

Sjálfstætt stjórnvald.

Sveitarfélag Langanesbyggðar er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni sveitarstjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.

3. gr.

Verkefni sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið Langanesbyggð annast þau lögmæltu verkefni sem því eru falin í lögum, sbr. og leiðbeinandi auglýsingu frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

Sveitarfélagið Langanesbyggð vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Sveitarfélaginu Langanesbyggð er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þess, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

II. KAFLI

Um sveitarstjórn.

4. gr.

Hlutverk sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. síðari breytingar, annarra laga og samþykkt þessari.

Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.

5. gr.

Verkefni sveitarstjórnar.

Meðal verkefna sveitarstjórnar er:

  1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélagsins.
  2. Að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða lög­giltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endur­skoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
  3. Að setja sveitarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða sveitarstjóra, sbr. 54. gr. sveitar­stjórnarlaga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana þess, setja starfsemi sveitarfélagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  6. Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
  7. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
  8. Að hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
  9. Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.

6. gr.

Ný sveitarstjórn tekur til starfa.

Nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur frá­far­andi sveitarstjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosn­ingar til sveitarstjórna. Nýkjörin sveitarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarð­ana um málefni sveitarstjórnarinnar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni sveitarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.

7. gr.

Kjör oddvita og varaoddvita.

Á fyrsta fundi kýs sveitarstjórn oddvita og einn varaoddvita. Kjörtímabil oddvita og varaoddvita er hið sama og sveitarstjórnar. Njóti oddviti eða varaoddviti ekki lengur stuðnings sveitarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef oddviti eða varaoddviti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu oddvita og varaoddvita til ráðuneytis þegar að því loknu.

Sá telst rétt kjörinn oddviti sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitar­stjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meirihluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkom­andi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauð­syn­legt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.

Þegar að lokinni kosningu oddvita skal kjósa varaoddvita. Kosning varaoddvita fer fram með sama hætti og oddvita.

III. KAFLI

Fundir sveitarstjórnar og fundarsköp.

8. gr.

Fundir sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Langanesbyggðar heldur reglulega fundi sveitarstjórnar annan og fjórða hvern fimmtudag í mánuði, kl. 17.00.

Aukafundi skal halda þegar oddviti eða sveitarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðj­ungur sveitarstjórnarfulltrúa óskar þess.

Sveitarstjórn Langanesbyggðar er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á undan.

Sveitarstjórn Langanesbyggðar er heimilt að fella niður reglulega fundi sveitarstjórnar vegna sumarleyfis í allt að 2 mánuði.

9. gr.

Boðun sveitarstjórnarfunda.

Sveitarstjóri eða oddviti boðar fund sveitarstjórnar. Fundarboð skal berast sveitar­stjórnar­mönnum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.

Aukafund skal halda í sveitarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati oddvita og fram­kvæmda­stjóra sveitarfélagsins og skylt að halda aukafund í sveitarstjórn ef a.m.k. þriðj­ungur sveitarstjórnarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundar­efni. Fundarboð vegna aukafundar skal berast sveitarstjórnarmönnum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund. Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.

10. gr.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar.

Sveitarstjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfundar í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar oddvita sveitarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarstjórnar, svo og ráðningu sveitarstjóra og helstu stjórnenda sveitarfélagsins og endurskoðenda þess.
  2. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og sveitarstjóri eða oddviti ákveða að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.

Sveitarstjórnarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna það sveitarstjóra skriflega í tæka tíð til þess að unnt sé að taka það á dagskrá.

11. gr.

Tilkynning til íbúa um fundi sveitarstjórnar.

Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar tekur sveitarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær sveitarstjórnarfundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti.

Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt með opinberri auglýsingu eða með auglýsingu á vefsíðu sveitarfélagsins um fyrirhugaða fundi sveitarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um sveitarstjórnarmenn, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

12. gr.

Opnir fundir sveitarstjórnar.

Fundir sveitarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Oddviti eða sveitarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.

Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu viðstaddir.

13. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Sveitarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur sveitarstjórnarmanna sé viðstaddur á fundi.

Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti, fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

14. gr.

Tvær umræður í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:

  1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
  2. Staðfestingu ársreiknings.
  3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meirihluta þess.
  4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.

Þá skal sveitarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

15. gr.

Fundarsköp og ritun fundargerða.

Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Um ritun fundargerða skal að öðru leyti farið eftir leiðbeiningum um ritun fundargerða sveitarstjórna, samanber auglýsingu þess efnis nr. 22/2013, sem settar hafa verið sam­kvæmt 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.

Meginreglur fundarskapa skulu vera eftirfarandi.

  1. Fundarstjórn. Oddviti stjórnar umræðum á fundum sveitarstjórnar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
    Oddviti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum sveitarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar.
  2. Vald oddvita. Skylt er sveitarstjórnarmanni að lúta valdi oddvita í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
    Ef sveitarstjórnarmaður ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal oddviti víta hann. Ef sveitarstjórnarmaður er víttur tvisvar á sama fundi getur oddviti lagt til við sveitarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
    Ef sveitarstjórnarmaður hlýðnast ekki úrskurði oddvita eða almenn óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
    Ef áheyrandi á sveitarstjórafundi raskar fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal.
    Leyfi oddvita þarf til að taka myndir í fundarsal sveitarstjórnar.
  3. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema sveitarstjórn eða oddviti ákveði að önnur röð skuli höfð. Oddviti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra sveitarstjórnarmanna þau afbrigði.
  4. Málfrelsi sveitarstjóra. Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í sveitar­stjórn.
  5. Málfrelsi. Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar.
    Sveitarstjórnarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða sveitarstjóra eða framsögumann svo og sveitarstjórnarmann sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður oddviti í hvaða röð þeir tala.
  6. Ávarp ræðumanns. Sveitarstjórnarmaður skal beina máli sínu til oddvita.
    Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða.
    Ekki má lesa prentað mál nema oddviti leyfi.
  7. Hve oft má tala. Sveitarstjórnarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó sveitarstjórnarmanni að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutn­ings­maður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.
  8. Ræðutími. Ef oddviti telur umræður dragast úr hófi fram geti hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða að umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í eina klukkustund ef einhver sveitarstjórnarfulltrúi kveður sér hljóðs.
  9. Tillögur og afgreiðsla. Sveitarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.
    Oddviti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
  10. Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í sveitarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
  11. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer fram með handa­uppréttingu. Sveitarstjórnarmaður greiðir atkvæði úr sæti sínu. Oddviti biður þá sveitarstjórnarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæða­greiðslunnar.
    Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
    Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur fulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá sveitarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar sveitarstjórnarmaður, þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
    Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarmaður óskar og sveitarstjórn samþykkir.
  12. Kosningar. Kosningar sem fara fram í sveitarstjórn, skv. 43. gr. sveitar­stjórnar­laga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.
    Sveitarstjórn ber að hafa í huga ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitar­stjórnar­laga varðandi kynjahlutfall.

16. gr.

Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Um hæfi sveitarstjórnarmanna, nefndarfulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í meðferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnarlögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að einum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls þykir ekki gefa tilefni til slíks.

Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber sveitarstjórnarmanni, nefndarfulltrúa eða starfs­manni sveitarfélagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að vilja­afstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samn­inga fyrir hönd sveitarfélagsins.

Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.

17. gr.

Varamenn í sveitarstjórn.

Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Hafi kosning farið fram með hlutbundinni kosningu taka varamenn sæti í þeirri röð sem listi var skipaður og að öðru leyti í samræmi við 21. gr. sveitarstjórnarlaga.

IV. KAFLI

Réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.

18. gr.

Skyldur sveitarstjórnarmanna.

Sveitarstjórnarmanni ber skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur oddviti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Hverjum sveitarstjórnarmanni er skylt að inna af hendi störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnarinnar.

Sveitarstjórnarmenn skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

19. gr.

Réttur sveitarstjórnarmanna.

Sveitarstjórnarmenn eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.

Sveitarstjórnarmaður á rétt á að tekið verði á dagskrá sveitarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess.

Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá sveitarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Sveitarstjórnarmenn hafa málfrelsi á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum sveitarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar.

Vilji sveitarstjórnarmaður ekki una úrskurði oddvita um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðna.

20. gr.

Aðgangur að gögnum.

Vegna starfa sinna í sveitarstjórn á sérhver sveitarstjórnarmaður rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í sveitarstjórn. Beiðni um slíkt skal beint skriflega til skrifstofu sveitarfélagsins. Tiltaka skal í beiðninni hvaða gögnum óskað er eftir og/eða um hvaða málefni þau fjalla. Miða skal við að aðgangur sé veittur eða gögn afhent innan 5 daga frá móttöku beiðninnar.

Ef gögnin eru undanþegin upplýsingarétti almennings er óheimilt að taka af þeim afrit og fara með þau af skrifstofu, sbr. 28. gr. sveitarstjórnarlaga, nema að höfðu samráði við sveitarstjóra eða viðkomandi sviðsstjóra.

Sveitarstjórnarmaður skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitar­félagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.

21. gr.

Siðareglur og góðir starfshættir.

Sveitarstjórnarmaður skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem sveitarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

22. gr.

Lausn frá störfum.

Telji sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við sveitarstjórn að hún:

  1. létti af honum störfum eða
  2. veiti honum lausn úr sveitarstjórn um tiltekinn fyrirfram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.

Þegar sveitarstjórnarmaður flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má sveitarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en sveitarstjórnarmaður flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir sveitar­stjórnar­maður kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.

Missi sveitarstjórnarmaður kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórn. Ef sveitar­stjórnar­maður missir fjárforræði skal sveitarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

23. gr.

Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í sveitarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur sveitarstjórnarmaður krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra sveitar­stjórnar­fulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsu­fars­ástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í sveitar­stjórn á þeim fundi.

Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður.

Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Þegar fyrirséð er að aðalmaður í sveitarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í sveitar­stjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í sveitarstjórn skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórn frá og með næsta fundi.

24. gr.

Þóknun o.fl.

Sveitarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitar­stjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis sveitarstjórnarmanns og fundar­staðar sveitarstjórnar skal sveitarstjórnarmaður fá hæfilega greiðslu vegna ferða­kostn­aðar. Takist sveitarstjórnarmaður á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins sam­kvæmt ákvörðun sveitarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalar­kostnaðar.

Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

Sveitarstjórnarmaður má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

25. gr.

Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna, eiga einnig við um vara­menn þegar þeir taka sæti í sveitarstjórn.

V. KAFLI

Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en byggðarráð.

26. gr.

Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir sveitarstjórnar.

Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og sveitarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin sveitarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum vald­heimilda og fyrri sveitarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.

27. gr.

Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir sveitarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Fram­kvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Sveitarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndar­setu.

28. gr.

Valdsvið nefnda og framsal sveitarstjórnar til fastanefnda
á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum sveitarstjórnar.

Sveitarstjórnin getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið sveitarstjórn til ákvörðunar og skal slíkt vald­framsal ákveðið sérstaklega í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.

29. gr.

Afgreiðsla á fundargerðum.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir sveitarstjórn til kynningar eða afgreiðslu og staðfestingar. Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti.

Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir sveitarstjórn.

30. gr.

Fundir nefnda og ályktunarhæfi.

Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Ennfremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki. Ákvörðun um opinn fund skal tekin fyrir á fyrri fundi nefndarinnar og fá þar samþykki allra fundarmanna.

Á dagskrá opins nefndarfundar verða einungis til umfjöllunar málefni sem varða umtalsverða og/eða almenna hagsmuni íbúa sveitarfélagsins og geta ekki varðað mál sem undanþegin kunna að vera upplýsingarétti almennings.

Opinn nefndarfund skal auglýsa með dreifibréfi til allra heimila í sveitarfélaginu og með auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins.

31. gr.

Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um með­ferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Nefnd getur ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 15. gr. samþykktar þessarar.

32. gr.

Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til sveitarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd sveitarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi vara­manna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka vara­menn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.

Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta sveitarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.

33. gr.

Boðun varamanna.

Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar sveitarstjórn nýjan vara­mann til setu í nefndinni.

Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.

34. gr.

Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í sveitarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við sveitarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Sveitarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan sveitarstjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Ennfremur getur sveitarstjórnarmaður krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Sveitarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur sé innan sveitarstjórnar um breyt­ingarnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

35. gr.

Áheyrnarfulltrúar.

Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjör­gengis­skilyrðum í viðkomandi nefnd.

36. gr.

Þóknun.

Sveitarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati sveitarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Sveitarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins.

37. gr.

Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.

Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eðli máls samkvæmt við það sem er þörf á vegna starfa fulltrúa í viðkomandi nefnd.

38. gr.

Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að sam­kvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem sveitarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum sveitarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

39. gr.

Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

A. Fulltrúar kjörnir til 4 ára í fastanefndir á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum. Sveitarstjórn kýs ráðunum formann.

  1. Kjörstjórn við sveitarstjórnar- og alþingiskosningar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og skv. 10. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Kjörstjórn kýs sér oddvita og ritara úr sínum hópi. Kjörstjórnir fara með þau verkefni sem þeim eru falin samkvæmt ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórna og laga um kosningar til Alþingis. Ennfremur kýs sveitarstjórn tvær undirkjörstjórnir, þrjá aðalmenn í hvora og jafnmarga varamenn.
  2. Atvinnu-, menningar- og ferðamálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin starfar samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt þeim verkefnum sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndarinnar.
  3. Hafnarnefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í hafnarnefnd. Nefndin starfar samkvæmt lögum um hafnamál nr. 61/2003 ásamt þeim verkefnum sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndarinnar.
  4. Umhverfis- og skipulagsnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með skipulags- og umhverfismál samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndar­innar.
  5. Landbúnaðarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með verkefni landbúnaðarmála samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt þeim verkefnum sem henni eru falin samkvæmt samþykktum.
  6. Fræðslunefnd. Sveitarstjórn Langanesbyggðar kýs fjóra aðalmenn og jafnmarga til vara og hreppsnefnd Svalbarðshrepps kýs einn aðalmann og einn til vara samkvæmt samstarfssamningi. Nefndin fer með verkefni leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og framhaldsskóla samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndar­innar.
  7. Íþrótta- og tómstundanefnd. Sveitarstjórn Langanesbyggðar kýs fjóra aðalmenn og jafnmarga til vara og hreppsnefnd Svalbarðshrepps kýs einn aðalmann og einn til vara samkvæmt samstarfssamningi. Nefndin fer með verkefni íþrótta- og tómstundamála samkvæmt lögum og reglugerðum þar um ásamt öðrum þeim verkefnum sem henni eru falin samkvæmt samþykktum nefndarinnar.
  8. Jafnréttisnefnd. Sveitarstjórn fer með hlutverk jafnréttisnefndar.
  9. Húsnæðisnefnd. Sveitarstjórn fer með hlutverk húsnæðisnefndar.

B. Aðrar stjórnir, ráð, fulltrúar og samstarfsnefndir á vegum sveitarfélagsins þar sem sveitarstjórn skipar fulltrúa eða fulltrúar eru skipaðir af viðkomandi nefndum sveitarstjórna.

  1. Almannavarnanefnd Þingeyinga. Fulltrúar skipaðir af héraðsnefnd Þingeyinga á fyrsta fundi hennar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
  2. Félags- og barnaverndarnefnd Þingeyinga. Fulltrúar skipaðir af héraðsnefnd Þingeyinga á fyrsta fundi hennar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
  3. Heilbrigðisnefnd. Sveitarstjórnir á Norðurlandi eystra kjósa sameiginlega fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina. Nefndin starfar samkvæmt lögum og reglugerðum þar um.
  4. Náttúruverndarnefnd. Fulltrúar skipaðir af héraðsnefnd Þingeyinga á fyrsta fundi hennar að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
  5. Þjónustuhópur aldraðra. Sveitarstjórn kýs einn aðalmann og annan til vara.
  6. Fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveitarstjórn kýs einn aðalmann og annan til vara.
  7. Fulltrúar á aðalfund Eyþings. Sveitarstjórn kýs tvo aðalmenn og jafnmarga til vara samkvæmt gr. 4 í lögum Eyþings – sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þin­geyjar­sýslum.
  8. Fulltrúi í héraðsnefnd Þingeyinga. Sveitarstjórn kýs einn aðalmann og annan til vara samkvæmt 6. gr. samþykkta héraðsnefndar Þingeyinga.
  9. Sauðanesnefnd. Sveitarstjórn kýs einn aðalmann og annan til vara.
  10. Vímuvarnarráð. Sveitarstjórn kýs einn aðalmann og annan til vara. Fulltrúi sveitarstjórnar er jafnframt formaður ráðsins.
  11. Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Nausts. Sveitarstjórn kýs tvo aðalmenn og jafnmarga til vara.

C. Verkefnabundnar nefndir.

Sveitarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Sveitarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.

VII. KAFLI

Sveitarstjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.

40. gr.

Ráðning sveitarstjóra.

Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana sveitar­stjórnar og verkefni sveitarfélags. Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningar­samning við sveitarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími sveitar­stjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil sveitarstjórnar.

41. gr.

Hlutverk sveitarstjóra.

Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins. Hann skal sjá um að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.

Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda og ráða sem sveitarstjórn skipar.

Sveitarstjóri skal sjá um að fundir sveitarstjórnar og annarra nefnda sveitarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu sveitarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi sveitarstjórn ekki falið það öðrum.

Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarfélagsins. Honum er heimilt að veita öðrum starfs­manni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

Sveitarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til.

42. gr.

Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.

Sveitarstjórn ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu Langa­nes­byggð og veitir þeim lausn frá starfi.

43. gr.

Um ráðningu annarra starfsmanna.

Um ráðningu annarra starfsmanna annast sveitarstjóri, enda hafi sveitarstjórn ekki ákveðið annað í samþykkt þessari eða með almennum fyrirmælum.

44. gr.

Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn sveitarfélagsins Langanesbyggðar og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

45. gr.

Um starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins Langanesbyggðar fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og ákvæðum ráðningarsamninga.

VIII. KAFLI

Fjármál sveitarfélagsins.

46. gr.

Fjárstjórnarvald sveitarstjórnar.

Einvörðungu sveitarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
  6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

47. gr.

Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Sveitarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Sveitarstjóri leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir sveitarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Sveitarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu sveitarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breyt­ingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráð­stöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætl­unar­tímabilsins.

Sveitarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjár­hags­áætlun.

48. gr.

Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem sveitarstjórn tekur skv. 47. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitar­stjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjár­hags­legar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar sveitarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi sveitarstjórnarinnar.

49. gr.

Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldu­bundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

50. gr.

Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.

Áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuld­bind­ingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfir­stand­andi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitar­félags­ins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.

Um heimildir sveitarfélagsins Langanesbyggðar til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

51. gr.

Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af sveitarstjóra sveitarfélagsins og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.

Sveitarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrir­tækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.

Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitar­stjórnar­mála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

52. gr.

Endurskoðun ársreikninga.

Sveitarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga.

IX. KAFLI

Samráð við íbúa.

53. gr.

Sveitarstjórn skal leitast við að tryggja íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess möguleika til að taka þátt í og hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins og undirbúningi stefnumótunar, sbr. ákvæði X. kafla sveitarstjórnarlaga.

Sveitarstjórn skal sérstaklega vinna að því að íbúar sveitarfélagsins geti fengið greinar­góðar upplýsingar um áætlanir sem sveitarfélagið hefur til meðferðar og önnur mál sem hafa verulega þýðingu fyrir sveitarfélagið. Í því skyni verði eftir því sem best hentar veittar upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins, dreifibréf send á heimili í sveitar­félag­inu eða haldnir borgarafundir.

54. gr.

Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Ef 30% þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.

Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk sveitarstjórna og framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu fer skv. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

55. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafn­framt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Langanesbyggðar nr. 1166/2008.

Innanríkisráðuneytinu, 14. júní 2013.

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 1. júlí 2013