Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 39/2009

Nr. 39/2009 6. apríl 2009
LÖG
um breyting á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999, með síðari breytingum.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.
    
    Í stað hlutfallstölunnar „14%“ í 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: 20%.

2. gr.
    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.
    Þeir sem fengið hafa endurgreiðsluvilyrði fyrir gildistöku laga þessara eiga þess kost að sækja aftur um endurgreiðsluvilyrði eftir að endurgreiðsluhlutfallið hefur verið hækkað enda sé framleiðsla kvikmyndar eða sjónvarpsefnis ekki hafin.

Gjört á Bessastöðum, 6. apríl 2009.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Össur Skarphéðinsson.

A deild - Útgáfud.: 7. apríl 2009