Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
66/2007
|
1. gr. Landinu er skipt í 25 stjórnsýsluumdæmi. Eiga sveitarfélög undir hvert þeirra, sem hér segir: Umdæmi sýslumannsins í Reykjavík: Reykjavíkurborg, Seltjarnarneskaupstaður, Mosfellsbær og Kjósarhreppur. Umdæmi sýslumannsins á Akranesi: Akranes. Umdæmi sýslumannsins í Borgarnesi: Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur og Borgarbyggð. Umdæmi sýslumanns Snæfellinga í Stykkishólmi: Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit og Stykkishólmsbær. Umdæmi sýslumannsins í Búðardal: Dalabyggð. Umdæmi sýslumannsins á Patreksfirði: Reykhólahreppur, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur. Umdæmi sýslumannsins í Bolungarvík: Bolungarvíkurkaupstaður. Umdæmi sýslumannsins á Ísafirði: Ísafjarðarbær og Súðavíkurhreppur. Umdæmi sýslumannsins á Hólmavík: Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Bæjarhreppur. Umdæmi sýslumannsins á Blönduósi: Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Höfðahreppur og Skagabyggð. Umdæmi sýslumannsins á Sauðárkróki: Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur. Umdæmi sýslumannsins á Siglufirði: Fjallabyggð. Umdæmi sýslumannsins á Akureyri: Grímseyjarhreppur, Dalvíkurbyggð, Arnarneshreppur, Hörgárbyggð, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Umdæmi sýslumannsins á Húsavík: Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Aðaldælahreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanesbyggð. Umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði: Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshérað, Borgarfjarðarhreppur og Seyðisfjarðarkaupstaður. Umdæmi sýslumannsins á Eskifirði: Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur og Djúpavogshreppur. Umdæmi sýslumannsins á Höfn: Sveitarfélagið Hornafjörður. Umdæmi sýslumannsins í Vík: Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur. Umdæmi sýslumannsins á Hvolsvelli: Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahreppur. Umdæmi sýslumannsins í Vestmannaeyjum: Vestmannaeyjabær. Umdæmi sýslumannsins á Selfossi: Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus. Umdæmi sýslumannsins í Keflavík í Reykjanesbæ: Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður, Reykjanesbær og Sveitarfélagið Vogar, þó ekki svæði sem falla undir lið 23. Umdæmi sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli: Svæði á Suðurnesjum sem sýnd eru á uppdráttum er fylgja reglugerð þessari. Umdæmi sýslumannsins í Hafnarfirði: Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær og Sveitarfélagið Álftanes. Umdæmi sýslumannsins í Kópavogi: Kópavogsbær.
2. gr. Þar sem mörk milli stjórnsýsluumdæma eru óskýr, svo sem á hálendinu, ákveður dómsmálaráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar. Á sama hátt ákveður dómsmálaráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar ef það getur af einhverjum ástæðum átt undir fleiri en einn sýslumann. 3. gr. Á eftirgreindum stöðum skulu vera útibú frá sýslumannsembættum: Ólafsvík. Ólafsfirði. Dalvík. Vopnafirði. Egilsstöðum. Neskaupstað. Grindavík.
Með útibúi skv. 1. mgr. er átt við skrifstofu þar sem veitt er þjónusta frá sýslumannsembættum. 4. gr. Á aðalskrifstofu sýslumanns ber að færa aðalbókhald vegna fjárgreiðslna sem eru mótteknar eða inntar af hendi í útibúum. Í útibúum ber þó að halda sjóðbók og skal uppgjör við aðalskrifstofu sýslumanns fara fram daglega. Skjöl yfir afgreidd mál ber að varðveita á aðalskrifstofu. 5. gr. Landinu er skipt í 15 lögregluumdæmi. Þau eru sem hér segir: Umdæmi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu nær yfir: Umdæmi sýslumannanna í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, sbr. 1., 25. og 26. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Akranesi nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins á Akranesi, sbr. 2. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans í Borgarnesi nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins í Borgarnesi auk umdæmis sýslumannsins í Búðardal, sbr. 3. og 5. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Snæfellsnesi í Stykkishólmi nær yfir:
Umdæmi sýslumanns Snæfellinga í Stykkishólmi, sbr. 4. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum á Ísafirði nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins á Ísafirði auk umdæma sýslumannanna í Bolungarvík, á Hólmavík og Patreksfirði, sbr. 6., 7., 8. og 9. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Blönduósi nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins á Blönduósi, sbr. 10. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Sauðárkróki nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins á Sauðárkróki, sbr. 11. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Akureyri nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins á Akureyri auk umdæmis sýslumannsins á Siglufirði, sbr. 12. og 13. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Húsavík nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins á Húsavík, sbr. 14. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Seyðisfirði nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði, sbr. 15. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Eskifirði nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins á Eskifirði auk umdæmis sýslumannsins á Höfn, sbr. 16. og 17. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Hvolsvelli nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins á Hvolsvelli auk umdæmis sýslumannsins í Vík, sbr. 18. og 19. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins í Vestmannaeyjum, sbr. 20. tölul. 1. gr. - Umdæmi lögreglustjórans á Selfossi nær yfir:
Umdæmi sýslumannsins á Selfossi, sbr. 21. tölul. 1. gr. Umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum nær yfir: Umdæmi sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli og sýslumannsins í Keflavík í Reykjanesbæ, sbr. 22. og 23. tölul. 1. gr.
6. gr. Á eftirgreindum stöðum skulu vera varðstofur lögreglu: Ólafsvík. Grundarfirði. Búðardal. Patreksfirði. Bolungarvík. Hólmavík. Siglufirði. Ólafsfirði. Dalvík. Raufarhöfn. Þórshöfn. Vopnafirði. Egilsstöðum. Neskaupstað. Fáskrúðsfirði. Höfn. Kirkjubæjarklaustri. Vík í Mýrdal. Grindavík. Sandgerði. Garði. Vogum.
Með varðstofu lögreglu er átt við lögregluvarðstofu utan aðalstöðvar lögreglu. 7. gr. Í umdæmi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu skulu vera lögregluvarðstofur samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðherra hverju sinni eftir tillögu lögreglustjóra. 8. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt ákvæðum 3. mgr. 6. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996, sbr. 2. gr. laga nr. 46/2006 og 1. mgr. 2. gr. laga um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, nr. 92/1989, sbr. 7. gr. laga nr. 46/2006, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 57/1992 með síðari breytingum. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 2. febrúar 2007. Björn Bjarnason. Dís Sigurgeirsdóttir. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|
B-deild - Útgáfud.:
5. febrúar 2007
|