Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 832/2008

Nr. 832/2008 29. ágúst 2008
AUGLÝSING
um útflutningsgjald af kindakjöti verðlagsárið 2008-2009.

Samkvæmt 5. mgr. 29. gr. laga nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, hefur verið ákveðið að útflutningsgjald af kindakjöti verðlagsárið 2008-2009, verði kr. 170 á hvert kg af dilkakjöti.

Auglýsing þessi er sett með heimild í 29. gr. laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum nr. 99/1993, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 29. ágúst 2008.

F. h. r.
Ólafur Friðriksson.

Arnór Snæbjörnsson.

B deild - Útgáfud.: 1. september 2008