Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 944/2011

Nr. 944/2011 29. september 2011
REGLUR
um framkvæmd gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda.

Markmið gæðaeftirlits.

1. gr.

Markmið gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda er að tryggja að endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtæki ræki störf sín í samræmi við ákvæði laga nr. 79/2008 um endurskoðendur, siðareglur Félags löggiltra endurskoðenda og aðrar reglur sem taka til starfa endurskoðenda.

Umfang gæðaeftirlits.

2. gr.

Gæðaeftirlit felur í sér könnun á gæðakerfi endurskoðunarfyrirtækis, gæðastjórnun endurskoðenda og skoðun vinnuskjala eftir því sem við á. Markmiðið er að ganga úr skugga um að ekkert bendi til annars en að endurskoðunarfyrirtæki og endurskoðendur ræki störf sín í samræmi við ákvæði laga um endurskoðendur, siðareglur Félags löggiltra endurskoðenda og aðrar reglur sem taka til starfa endurskoðenda.

Gæðaeftirlitið skal fela í sér sannprófanir á að gæðakerfi, gæðastjórnun og frágangur vinnuskjala sé í samræmi við góða endurskoðunarvenju, skv. 9. gr., sbr. ákvæði til bráðabirgða II laga um endurskoðendur.

3. gr.

Gæðaeftirlitið nær til allra endurskoðenda sem sinna endurskoðun samkvæmt lögum um endurskoðendur.

Gæðaeftirlitið getur beinst að endurskoðunarfyrirtæki í heild sinni ef um sameiginlegt gæðastjórnunarkerfi er að ræða í fyrirtækinu og til einstakra endurskoðenda sem árita endurskoðuð reikningsskil.

Gæðaeftirlitið nær að jafnaði til hvers endurskoðanda eigi sjaldnar en á sex ára fresti en endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtæki sem annast endurskoðun eininga tengdra almannahagsmunum skulu þó sæta gæðaeftirliti eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti sbr. 1. og 2. mgr. 22. gr. laga um endurskoðendur. Endurskoðendaráð getur ákveðið örara eftirlit vegna sérstakra aðstæðna.

Sinni endurskoðunarfyrirtæki eða endurskoðandi ekki tilmælum um gæðaeftirlit samkvæmt 1. mgr. 4. gr. innan þeirra tímamarka sem fram koma í 7. gr. eða veiti ekki nauðsynlega aðstoð og aðgang að upplýsingum skv. 8. gr. mun endurskoðendaráð grípa til viðeigandi ráðstafana samkvæmt lögum um endurskoðendur. Koma þá til álita ákvæði 17. gr. laga um endurskoðendur.

Gæðaeftirlitsmenn.

4. gr.

Félag löggiltra endurskoðenda skal annast gæðaeftirlit með störfum endurskoðenda í samráði við endurskoðendaráð sbr. 4. tl. 13. gr. laga um endurskoðendur.

Félag löggiltra endurskoðenda velur gæðaeftirlitsmenn að fengnu samþykki endurskoðenda­ráðs.

Gæðaeftirlitsmenn skulu vera endurskoðendur með víðtæka reynslu af endurskoðunar­störfum og óháðir þeim sem eftirlitið beinist að.

Við val gæðaeftirlitsmanna skal gæta að eftirfarandi:

a)

Tveir gæðaeftirlitsmenn skulu koma að hverju verkefni.

b)

Þeir sem starfa saman að gæðaeftirliti skulu ekki vera samstarfsmenn í endurskoðunarfyrirtæki.

c)

Þeir sem veljast til starfa sem gæðaeftirlitsmenn skulu sækja námskeið í gæðaeftirliti áður en gæðaeftirlit hefst.

d)

Gæðaeftirlitsmenn skulu staðfesta skriflega óhæði sitt samkvæmt 2. mgr. 14. gr. áður en gæðaeftirlit hefst.

e)

Þeir sem veljast til starfa sem gæðaeftirlitsmenn skulu ekki hafa hlotið áminningu í kjölfar gæðaeftirlits á síðustu þrem árum né sitja í gæðanefnd Félags löggiltra endurskoðenda.

5. gr.

Félag löggiltra endurskoðenda skal hlutast til um að námskeið fyrir gæðaeftirlitsmenn sé haldið á hverju ári. Viðfangsefni námskeiðsins er að fjalla almennt um gæðakerfi, gæðastjórnun og vinnuskjöl endurskoðenda með hliðsjón af endurskoðunarstöðlum og siðareglum. Á námskeiðinu skal sérstaklega farið yfir verklagsreglur um framkvæmd gæðaeftirlitsins með áherslu á:

1)

Gæðastjórnunarkerfi í endurskoðunarfyrirtækjum.

2)

Endurskoðunarferilinn með hliðsjón af endurskoðunarstöðlum.

3)

Reglur laga um endurskoðendur varðandi óhæði og eignarhald.

4)

Ákvæði laga og reglna um stjórnsýslu

5)

Kröfur til hæfni.

6)

Ákvæði laga um gæðaeftirlit.

7)

Kröfur um skjölun endurskoðunar.

8)

Viðfangsefni endurskoðendaráðs.

9)

Ábyrgð og hlutverk gæðaeftirlitsmanns.

10)

Verkefni við gæðaeftirlit.

Framkvæmd gæðaeftirlits.

6. gr.

Gæðaeftirlit skal beinast að því að ganga úr skugga um að endurskoðandi og endur­skoð­unarfyrirtæki hafi uppfyllt eftirfarandi ákvæði laga um endurskoðendur:

1)

Ákvæði 2. - 6. mgr. 3. gr. og 4. og 5. mgr. 4. gr.

2)

Að gætt sé að óhæði endurskoðanda og endurskoðunarfyrirtækis í samræmi við ákvæði VI. kafla laganna.

3)

Að við endurskoðun sé fylgt góðri endurskoðunarvenju eins og hún kemur fram í endurskoðunarstöðlum, skv. 9. gr. laganna sbr. og ákvæði til bráðabrigða II.

4)

Að endurskoðendur hafi fullnægt skilyrðum um:

a.

starfsábyrgðartryggingu samkvæmt 6. gr.

b.

endurmenntun samkvæmt 7. gr.

c.

búsforræði samkvæmt 2. tl. 1. mgr. 2. gr.

5)

Að endurskoðunarfyrirtæki uppfylli kröfur laga um skýrslu um gagnsæi samkvæmt 29. gr.

7. gr.

Gæðaeftirlitsmenn skulu að jafnaði framkvæma gæðaeftirlit á tímabilinu október til desember ár hvert.

8. gr.

Endurskoðandi eða endurskoðunarfyrirtæki sem sætir gæðaeftirliti skal veita þeim sem sinnir gæðaeftirliti nauðsynlega aðstoð og aðgang að upplýsingum sem óskað er eftir við gæðaeftirlitið og getur ekki borið fyrir sig lagaákvæði um þagnarskyldu í því skyni að takmarka skyldu sína til þess að veita upplýsingar og aðgang að gögnum, sbr. 4. mgr. 22. gr. laga um endurskoðendur.

Verði endurskoðandi eða endurskoðunarfyrirtæki ekki við tilmælum skoðunarmanna um að veita aðgang að nauðsynlegum gögnum við framkvæmd gæðaeftirlits skulu skoð­unar­menn þegar í stað senda skýrslu þar að lútandi til Félags löggiltra endur­skoð­enda. Félaginu ber svo fljótt sem verða má að fjalla um skýrsluna og senda niður­stöður sínar til Endurskoðendaráðs sem tekur afstöðu til frekari meðferðar málsins á grund­velli laga um endurskoðendur.

9. gr.

Gæðaeftirlitsmenn skulu í störfum sínum m.a. styðjast við gátlista sem birtir eru í fylgiskjali með reglum þessum eftir því sem við á og taka saman skýrslu um niðurstöður sínar. Þeir skulu afhenda skýrsluna þeim aðila sem eftirlitið beinist að innan þriggja vikna frá því að könnun lauk. Sá sem eftirlitið beinist að skal staðfesta móttöku skýrslunnar og gefst þá jafnframt kostur á að koma á framfæri innan þriggja vikna athugasemdum, sem gæðaeftirlitsmenn taka afstöðu til. Þessar athugasemdir verða hluti af eftirlitsskýrslunni og skal endanleg skýrsla liggja fyrir þremur vikum síðar. Gæðaeftirlitsskýrslur skulu útbúnar með þeim hætti að nafnleyndar sé gætt. Sá sem eftirlitið beinist að fær afrit af endanlegri skýrslu.

10. gr.

Eftirlitsskýrslur skulu afhentar Félagi löggiltra endurskoðenda í lok gæðaeftirlits og eigi síðar en 1. mars að loknu tímabili gæðaeftirlits sbr. 7. gr.

Félag löggiltra endurskoðenda skal taka saman niðurstöður gæðaeftirlitsins og afhenda endurskoðendaráði eigi síðar en fjórum vikum eftir að eftirlitsskýrslur bárust skv. 1. mgr.

Efni eftirlitsskýrslu er trúnaðarmál.

11. gr.

Gæta skal fyllsta öryggis um meðferð gagna og trúnaðarupplýsinga við gæðaeftirlit. Gæðaeftirlitsmenn skulu ekki varðveita nein gögn eða upplýsingar sem varða störf þeirra að gæðaeftirliti loknu.

12. gr.

Endurskoðendaráð ber ábyrgð á varðveislu eftirlitsskýrslna. Skýrslur skulu varðveittar með tryggilegum hætti eigi skemur en í 7 ár.

Viðbrögð við niðurstöðu gæðaeftirlits.

13. gr.

Endurskoðendaráð metur niðurstöðu gæðaeftirlitsins og tekur afstöðu til frekari með­ferðar á grundvelli ákvæða laga um endurskoðendur.

Þagnarskylda og vanhæfisástæður.

14. gr.

Gæðaeftirlitsmenn eru bundnir þagnarskyldu um allar upplýsingar sem þeir fá vitneskju um í störfum sínum, sbr. 30. gr. laga um endurskoðendur.

Ákvæði 19. gr. laga um endurskoðendur þar sem fjallað er um vanhæfisástæður skulu einnig gilda um gæðaeftirlitsmenn. Sé gæðaeftirlitsmaður talinn vanhæfur skal vara­maður kallaður til í hans stað. Gæðaeftirlitsmaður skal sjálfur upplýsa um aðstæður sem leitt gætu til vanhæfis hans.

Kostnaður við gæðaeftirlit.

15. gr.

Um kostnað af framkvæmd gæðaeftirlitsins fer skv. 4. mgr. 12. gr. laga um endur­skoðendur.

16. gr.

Reglur þessar, sem eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 79/2008 um endur­skoðendur, með síðari breytingum öðlast þegar gildi. Frá sama tíma eru felldar úr gildi reglur nr. 860/2010 um framkvæmd gæðaeftirlits með störfum endurskoðenda.

Endurskoðendaráði, 29. september 2011.

Bjarnveig Eiríksdóttir.

Helga Harðardóttir.

Hildur Árnadóttir.


Ólafur B. Kristinsson.


Þórður Reynisson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 17. október 2011