Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1034/2007

Nr. 1034/2007 25. október 2007

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta, nr. 122/2003.

1. gr.

Í stað orðanna „a.m.k. 15 dögum“ í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: eigi síðar en 10 dögum fyrir greiðsludag.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

a. 1. mgr. hljóðar svo:

Sveitarfélög skulu skila umsóknum til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga inn í rafrænt umsjónar- og úrvinnslukerfi sjóðsins, þar sem skrá skal kennitölu, nafn, lögheimili og aðsetur þeirra sem hafa fengið greiddar húsaleigubætur, ásamt upplýsingum um fjárhæðir bóta, tegund leiguhúsnæðis og leigufjárhæð.

b. 2. mgr. hljóðar svo:

Sveitarfélög skulu jafnframt með rafrænum hætti skila fyrir 1. nóvember ár hvert áætlun til Jöfnunarsjóðs um heildargreiðslur húsaleigubóta næsta árs miðað við grunnfjárhæðir bóta, sbr. 3. mgr. 2. gr.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 25. október 2007.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Sesselja Árnadóttir.


B-deild - Útgáfud.: 9. nóvember 2007

  Til baka