Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fengnum tillögum bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar eru hér með settar eftirfarandi reglur um umferð í Grundarfjarðarbæ: Umferð um Grundargötu skal hafa aðalbrautarrétt með biðskyldu við eftirtalin gatnamót: Hlíðarvegur - Grundargata, Borgarbraut - Grundargata, Hrannarstígur - Grundargata, Eyrarvegur - Grundargata, Fagurhólstún - Grundargata, Sæból - Grundargata, Allir botnlangar við Grundargötu - Grundargata.
Umferð um Hrannarstíg skal hafa aðalbrautarrétt með biðskyldu við eftirtalin gatnamót: Sólvellir - Hrannarstígur, Fagurhóll - Hrannarstígur, Botnlangi, Hrannarstígur 28-40 - Hrannarstígur, Smiðjustígur - Hrannarstígur, Hlíðarvegur - Hrannarstígur, Fossahlíð - Hrannarstígur, Hamrahlíð - Hrannarstígur.
Umferð um Fagurhól skal hafa aðalbrautarrétt með biðskyldu við eftirtalin gatnamót: Eyrarvegur - Fagurhóll.
Umferð um Eyrarveg skal njóta aðalbrautarréttar með biðskyldu við eftirtalin gatnamót: Fagurhólstún - Eyrarvegur.
Umferð um Fagurhólstún skal hafa aðalbrautarrétt með biðskyldu við eftirtalin gatnamót: Fellabrekka - Fagurhólstún.
Umferð um Fellasneið skal hafa aðalbrautarrétt með biðskyldu við eftirtalin gatnamót: Botnlangi, Fellasneið 22-28- Fellasneið 2-4-6-8, Botnlangi Fellabrekka 7-21.
Umferð um Sólvelli skal hafa aðalbrautarrétt með biðskyldu við eftirtalin gatnamót: Sæból - Sólvellir, Plan Ragnars og Ásgeirs ehf. - Sólvellir, Aðkeyrsla að Fiskmarkaði - Sólvellir.
Umferð um Borgarbraut skal hafa aðalbrautarrétt með biðskyldu við eftirtalin gatnamót: Hlíðarvegur - Borgarbraut, Hamrahlíð - Borgarbraut, Fossahlíð - Borgarbraut.
Umferð um Nesveg skal hafa aðalbrautarrétt með biðskyldu við eftirtalin gatnamót: Hrannarstígur - Nesvegur, Vegur neðan Soffaníasar Cecilssonar hf.
Umferð um Ölkelduveg skal hafa aðalbrautarrétt með biðskyldu við eftirtalin gatnamót: Botnlangi, Ölkelduvegur 17-23, Hrannarstígur - Ölkelduvegur.
Á litlu bryggju og stóru bryggju (Norðurgarði) við Grundarfjarðarhöfn, frá enda og upp að landi er vinnusvæði og öll óviðkomandi umferð bönnuð.
Um umferðarskipulag við grunnskóla Grundarfjarðar gildir eftirfarandi: Umferð frá Hjaltalínsholti niður Borgarbraut skal virða biðskyldu gagnvart þeim sem eru að beygja inn á grunnskólalóð. Umferð frá íþróttavelli skal virða biðskyldu gagnvart umferð frá Ölkelduvegi/Borgarbraut.
Merktar gangbrautir skulu vera á eftirtöldum stöðum: Á gatnamótum Sæbóls - Fagurhólstúns - Grundargötu, á fjóra vegu við Grundargötu, á Grundargötu á móts við Sögumiðstöð, á gatnamótum Borgarbrautar - Grundargötu, við sunnanverða Borgarbraut, á gatnamótum Hlíðarvegs og Borgarbrautar, á móts við Hlíðarveg 15, á gatnamótum Borgarbrautar og Hlíðarvegs, á móts við Borgarbraut 9, á móts við Grundargötu 69, á milli Grundargötu 13 og Grundargötu 16, á milli Grundargötu 27 og Grundargötu 30, á milli Grundargötu 43 og Grundargötu 44, á milli Borgarbrautar 18 og Grunnskóla Grundarfjarðar. Upplýst ljósamerki, á Eyrarvegi við Sólvelli, húsmegin, á Hrannarstíg við heilsugæslu, af Hlíðarvegi við Grundargötu, göngustígur, á Sólvöllum við Hrannarstíg, á Eyrarvegi norðan Grundargötu.
Hraðahindranir skulu vera á eftirtöldum stöðum: Á Ölkelduvegi á milli lóða nr. 7 og 9, á Hrannarstíg á milli Hlíðarvegs og Smiðjustígs, á Borgarbraut, á móts við Borgarbraut 9, á Sæból austan Sæbóls 16.
Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fengnum tillögum bæjarstjórnar Grundarfjarðar og koma til framkvæmda þegar í stað. Með auglýsingu þessari eru numin úr gildi þau ákvæði eldri auglýsinga um umferð í Grundarfirði, sem brjóta í bága við ákvæði auglýsingar þessarar. Lögreglustjórinn á Snæfellsnesi, 14. júní 2007. Ólafur K. Ólafsson. |