1. gr. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 142/2008 frá 26. október 2007 gildir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB), nr. 1430/2007 frá 5. desember 2007, um breytingar á viðaukum II og III með tilskipun Evrópusambandsins og ráðsins nr. 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi. 2. gr. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 21, 17. árg., bls. 1. 3. gr. Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1430/2007 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum. 4. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. gr. laga nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, öðlast þegar gildi. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 27. apríl 2010. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |