Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 25. mars 2010 staðfest breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2024 frá 8. júlí 2003. Breytingin felst í breyttri afmörkun hverfisverndarsvæðis á klapparholtinu Urðum, þannig að hverfisvernd á u.þ.b. 2.670 m² svæði í suðurjaðri holtsins fellur brott en stækkar að sama skapi á tveimur stöðum til norðurs. Einnig stækkar miðsvæðið að gatnamótum Langatanga og Vesturlandsvegar um 1 ha á kostnað opins svæðis til sérstakra nota. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun gert tillögu til ráðherra um staðfestingu. Breytingin öðlast þegar gildi. Umhverfisráðuneytinu, 25. mars 2010. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Sigríður Auður Arnardóttir. |