Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1009/2014

Nr. 1009/2014 17. nóvember 2014
AUGLÝSING
(IV) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Dalvíkurbyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 652 frá 4. júlí 2014 gilda um úthlutun byggðakvóta Dalvíkur, Árskógssands og Hauganess með eftirfarandi viðauka/breytingum:

 

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:

  

Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á þannig: 30% úthlutaðs byggðakvóta byggðarlags skal skipt jafnt á alla þá báta úr viðkomandi byggðarlagi sem sækja um byggðakvóta og uppfylla að öðru leyti ákvæði 1. gr. Óski einhver eftir tilteknu magni kvóta, sem er minna en hann á rétt á samkvæmt þessu ákvæði, þá skiptast eftirstöðvar þess hluta byggðakvótans jafnt milli hinna umsækjendanna. 70% byggðakvóta byggðarlagsins skal skipt hlutfallslega miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2013 til 31. ágúst 2014. Ekkert skip fær þó meira en 35% af þeim 70% sem skipt er samkvæmt lönduðum afla.

 

b)

Ákvæði 1., 2. og 3. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:

  

Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2014 til 31. ágúst 2015. Aflinn skal nema, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari. Eigandi fiskiskips skal gera skriflegan samning við fiskkaupanda um magn sem landað verður til vinnslu hjá viðkomandi vinnsluaðila, þar sem fram kemur að vinnsluaðili skuldbindur sig til þess að vinna aflann. Þó eru vinnsluaðila heimil jöfn skipti, miðað við þorskígildisstuðla, á tegundum við annan vinnsluaðila, og komi þá slík fyrirætlan fram í þeim samningi sem eigandi fiskiskips gerir við fiskkaupanda, og skal bæjar- eða sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt eru felldar úr gildi áður auglýstar reglur Dalvíkurbyggðar um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2014/2015, samkvæmt auglýsingu nr. 999 frá 13. nóvember 2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. nóvember 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 17. nóvember 2014