HANDHAFAR VALDS FORSETA ÍSLANDS samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru: 1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að semja um hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum úr 117,6 milljónum SDR í 321,8 milljónir SDR. Seðlabanki Íslands skal leggja fram það fé sem þarf til hækkunar kvótans, sbr. 2. mgr. 21. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands.
2. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt fyrir Íslands hönd að samþykkja breytingar á stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem varða fyrirkomulag á framkvæmdastjórn hans og voru samþykktar af sjóðráði sjóðsins 15. desember 2010.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 1. febrúar 2012. Jóhanna Sigurðardóttir. | Ásta R. Jóhannesdóttir. (L. S.) | Markús Sigurbjörnsson. |
Steingrímur J. Sigfússon. |