Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1158/2007

Nr. 1158/2007 7. desember 2007
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 463/1999 um framkvæmd almannatrygginga og skráningu í tryggingaskrá.

1. gr.

Í 2. málsl. 1. gr. falla brott orðin „Hagstofu Íslands“.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr.:

  1. Í stað orðanna „32. gr. laga nr. 117/1993“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 37. gr. laga nr. 100/2007.
  2. Í stað orðsins „Sjúkratryggingadeild“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: Tryggingastofnun ríkisins.

3. gr.

Í stað „38. gr.“ í 1. og 2. málsl. 9. gr. kemur: 43. gr.

4. gr.

7. og 8. mgr. 11. gr. falla brott.

5. gr.

Í stað orðanna „Útlendingaeftirlitinu“ og „Hagstofu Íslands“ í 18. gr. koma orðin „Útlend­ingastofnun“ og „Þjóðskrá“.

6. gr.

19. gr. fellur brott.

7. gr.

23. gr. orðast svo:

Við framkvæmd reglugerðar þessarar skal taka mið af ákvæðum milliríkjasamninga um almannatryggingar sem Ísland er aðili að, þ.m.t. lagaskilareglum.

Tryggingastofnun ríkisins getur gert samkomulag við stjórnvöld í öðrum ríkjum um undantekningar frá lagaskilareglum reglugerðar Evrópusambandsins nr. 1408/71 um almannatryggingar í samræmi við 17. gr. þeirrar reglugerðar í þágu ákveðinna einstak­linga eða hópa einstaklinga. Við gerð slíks samkomulags skal Tryggingastofnun taka mið af hagsmunum einstaklingsins. Þó skal samkomulag aldrei gert til lengri tíma en 5 ára.

8. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 15. gr., 4. mgr. 37. gr. og 70. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingu, öðlast þegar gildi.

Við samningu reglugerðar þessarar var höfð hliðsjón af reglugerðum Evrópusambandsins nr. 1408/71 og nr. 574/72 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og ákvörð­unum og tilmælum framkvæmdaráðs Evrópusambandsins um félagslegt öryggi farand­launþega sem eru hluti af EES-samningnum.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 7. desember 2007.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Ragnheiður Haraldsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 10. desember 2007