1. gr. Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms á vormisseri 1. námsárs í iðjuþjálfunarfræði í janúar 2012 við heilbrigðisvísindasvið miðast við grunntöluna 25 nemendur. 2. gr. Ákvörðun þessi, tekin af háskólaráði, skv. lögum nr. 85/2008 með síðari breytingu, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 364/2010 um fjöldatakmörkun í iðjuþjálfunarfræði við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Háskólanum á Akureyri, 4. apríl 2011. Stefán B. Sigurðsson rektor. |